Þrír eru grunaðir um stórfellda líkamsárás í hverfi 105 í Reykjavík. Þetta kemur fram í dagbók lögreglu og segir að málið sé í rannsókn en ekki er nánar greint frá því. Meðal annarra atvika sem getið er um í dagbókinni er að tilkynnt var um þjófnað á leðurjakka úr verslun í Smáralind í dag og skópari úr annarri verslun í verslunarmiðstöðinni.
Þrír grunaðir um stórfellda líkamsárás