Skemmtistaðurinn Le Constellation í skíðabænum Crans Montana í Sviss verður endurhannaður sem rými tileinkað ungu fólki. 41 lést og 115 slösuðust í eldsvoða sem kom upp á skemmtistaðnum á nýársnótt. Flest þeirra sem létust voru ungmenni.
Í samtali við svissneska dagblaðið Le Temps segir Christophe Darbellay, æðsti embættismaður í Wallis-héraði, að staðurinn verði endurhannaður sem vettvangur fyrir ungt fólk. Einnig sé unnið að gerð minnisvarða um fórnarlömb eldsvoðans sem sé nauðsynlegur þáttur í því að heiðra minningu þeirra.
Minnisvarðanum er ætlað að vera á fallegum, friðsælum og aðgengilegum stað þar sem fólk getur vottað þeim sem létust og særðust í eldsvoðanum virðingu sína.
Aðstandendur saka eigendurna um morð af ásettu ráði
Skemmtistaðurinn Le Constellation var troðfullur af ungu fólki þegar eldur kom upp í kjallara hans síðastliðna nýársnótt. Samkvæmt upplýsingum frá saksóknurum í Sviss kom eldur upp eftir að gestir báru kampavínsflöskur með áramótablysum upp að lofti kjallarans.
Sautján þeirra sem létust voru sextán ára og yngri. Daginn eftir eldsvoðann lýsti Guy Parmelin, forseti Sviss, yfir fimm daga þjóðarsorg í landinu. Hann sagði brunann vera einn versta harmleik sem svissneska þjóðin hefði upplifað.
Rannsókn svissneskra saksóknara á eldsupptökum stendur enn yfir. Lögmenn nokkurra aðstandenda hafa farið fram á að ákærur á hendur eigendum skemmtistaðarins verði hertar úr manndrápi af gáleysi í morð af ásetningi þar sem þeir telja að eigendurnir hafi vitað af eldhættunni. Eigendurnir hafa neitað sök.