Erlendum umsækjendum í Háskóla Íslands fer fækkandi á milli ára og á sama tíma fjölgar íslenskum umsækjendum. Þetta er í fyrsta skipti í langan tíma sem fækkunar gætir í erlendum umsóknum.
Silja Bára Ómarsdóttir, rektor Háskóla Íslands, segir að fækkun erlendra umsókna megi að öllum líkindum rekja til nýrra reglna um skólagjöld fyrir nemendur sem eru búsettir utan EES.
Alþingi samþykkti frumvarp sem heimilar opinberum háskólum að innheimta skólagjöld af nemendum utan EES-svæðisins. Nemendur búsettir utan EES-svæðisins þurfa því framvegis að borga full skólagjöld.
Að vísu náðist ekki að samþykkja frumvarpið í tæka tíð til að skólagjöldin gætu tekið gildi á næsta skólaári. Þau verða því ekki tekin upp fyrr en veturinn 2027–2028. Þegar umsóknarferlið í HÍ stóð yfir var þó búist við því að skrásetningargjaldið yrði komið og því má gera ráð fyrir að það hafi haft áhrif á umsóknir að utan.
Ísland er síðasta land Norðurlanda til þess að taka upp skólagjöld fyrir nemendur utan EES.
Innlendum umsóknum í HÍ fjölgar um 2,4% á milli ára.
Háskóla Íslands bárust rúmlega 8.700 umsóknir um grunn- og framhaldsnám fyrir komandi skólaár en flestar umsóknir um grunnám bárust Hugsvísindasviði. Þar er nám í íslensku sem annað mál og íslensku stoð vinsælast.
Heilbrigðisvísinfasvið og menntavísindasvið sækja í sig veðrið en umsóknum á þeim sviðum fjölgar töluvert á milli ára. Umsóknum í námi tengdu grunnskólakennslu fjölgar um 13% á milli ára og umsækjendum í hjúkrunar- og ljósmóðurfræði fjölgar um 30%.
Silja Bára segir að fjölda umsókna um nám á menntavísindasviði megi að öllum líkindum rekja til vel heppnaðra auglýsinga sviðsins.
„Þau lögðu sig fram við það að vekja athygli á frábærri nýrri aðstöðu í Hótel Sögu og nú er sviðið allt á sama reitnum.“ Silja segir að sömuleiðis hafi verið kallað eftir aukinni fagmenntun kennara í samfélaginu.
„Við fögnum því að nemendur séu að svara því kalli.“
Hér má sjá sundurliðun umsókna á grunnstigi eftir fræðasviðum
Háskólinn á Hólum og Háskóli Íslands mynda saman fyrstu íslensku háskólasamstæðuna og tekur hún til starfa þann 1. júlí. Háskólanum á Hólum bárust alls 275 umsóknir en 145 umsóknir voru samþykktar.