Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók fjóra einstaklinga í dag vegna gruns um tvær stórfelldar líkamsárásir. Lögregla rannsakar bæði atvik, en þau eru talin óskyld.
Þetta staðfestir Hjördís Sigurbjartsdóttir, aðstoðarlögregluþjónn hjá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu.
Fram kemur í tilkynningu að lögreglan hafi sinnt útkalli í póstnúmeri 105 í dag vegna stórfelldrar líkamsárásar sem þar átti sér stað. Þrír eru grunaðir og málið í rannsókn.
Þá barst lögreglustöð 4 einnig tilkynning um slagsmál þar sem einn var handtekinn grunaður um stórfellda líkamsárás. Lögreglustöðin sinnir verkefnum í Árbæ, Grafarholti, Grafarvogi, Norðlingaholti, Mosfellsbæ, Kjósarhreppi og á Kjalarnesi.
Við handtökuna naut lögreglan aðstoðar sérsveitar ríkislögreglustjóra. Einnig voru drónar notaðir með góðum árangri, að því er fram kemur í tilkynningu lögreglu.