Þýska veðurstofan (DWD) greinir frá því að hitinn hafi farið upp í 41,5 gráður í Drewitz í austurhluta landsins. Smábæinn er að finna rúmlega hundrað kílómetra suðaustur af höfuðborginni Berlín.
Með þessu var fyrra met slegið en það var 41,3 gráður og féll í Saarbrücken í suðvesturhluta Þýskalands á föstudaginn.
Mikill hiti herjar nú á íbúa Evrópu og voru hitamet einnig slegin í Danmörku (37,0 gráður) og Tékklandi (40,6 gráður).
Hitabylgjan hefur leitt til þess að mikill fjöldi tilkynninga hefur borist um drukknunarslys. Þannig greindi franski innanríkisráðherrann Laurent Nuñez frá því í dag að 74 manns hafi drukknað í Frakklandi síðan 18. júní. Hiti hefur mælst yfir 40 gráður víða um Frakkland í dag og síðustu daga.
Fyrr í vikunni upplifðu Frakkar sinn heitasta dag frá upphafi mælinga en þá mældist meðalhitinn í landinu 29,8 gráður.