Dómari í Alaska í Bandaríkjunum hefur úrskurðað að alnafni öldungadeildarþingmanns Repúblikanaflokksins, Dan Sullivan, fái að bjóða sig fram gegn nafna sínum í forvali flokksins í ágúst. Þingmaðurinn hefur fordæmt framboðið og heldur því fram að það geti ruglað kjósendur.
Dan Sullivan, maðurinn sem býður sig fram gegn þingmanninum, er kennari á eftirlaunum. Hann er búsettur í sjávarþorpinu Petersburg í Alaska. Í samtali við fréttaveitu AP segist Sullivan lengi hafa íhugað að bjóða sig fram.
Hann hafi með tímanum orðið sífellt óánægðari með störf þingmannsins og að auki hafi það gert honum auðveldara að fanga athygli kjósenda.
Sögðu Sullivan ekki bjóða sig fram „í góðri trú“
Með ákvörðuninni felldi Thomas Matthews, héraðsdómari í Alaska, ákvörðun Carol Beecher, framkvæmdastjóra kjörstjórnar, úr gildi. Beecher hafði áður úrskurðað að vísa ætti framboði Sullivan frá og að nafn hans ætti ekki að fá að vera á kjörseðlinum.
Matthews taldi hins vegar að ákvörðun kjörstjórnar, sem byggði á þeim forsendum að kennarinn fyrrverandi byði sig ekki fram „í góðri trú“, væri ekki á rökum reist. Framboð hans fengi því að standa.
Þá hafa lögmenn frambjóðandans bent á að stjórnarskrá Bandaríkjanna kveði aðeins á um þrjú skilyrði fyrir kjörgengi: aldur, ríkisborgararétt og búsetu. Þeir sögðu því engar lagalegar heimildir hafa verið til staðar sem leyfðu útilokun skjólstæðings síns frá kjörseðlinum.
Landsnefnd Repúblikana hefur fordæmt framboðið
Öldungadeildarþingmaðurinn Dan Sullivan og bandamenn hans, þar á meðal landsnefnd Repúblikana, hafa fordæmt framboð nafna hans og segja það geta ruglað kjósendur.
Þingmaðurinn hefur einnig sakað nafna sinn um að vinna með Demókrataflokknum og kosningateymi þingkonunnar fyrrverandi Mary Peltola, helsta keppinautar Sullivan, í þeim tilgangi að rugla kjósendur og auka sigurlíkur Peltola. Fulltrúar kosningateymis Peltola, Demókrataflokksins í Alaska og Dan Sullivan hafa allir vísað ásökununum á bug.
Baráttan um öldungadeildarsætið í Alaska þykir líkleg til að verða afar spennandi í haust. Demókratar vonast til þess að vinna sætið af Repúblikönum í tilraun til þess að ná meirihluta að nýju innan öldungadeildarinnar.