Óvenju gróðursælt er inni í bænum Stöng í Þjórsárdal en gróður þrífst þar vel vegna hönnunar á yfirbyggingu bæjarins. Uggi Ævarsson minjavörður Suðurlands segir að líkja mætti Stöng við gróðurhús en óvelkominn gróður hefur sprottið upp víðs vegar um bæinn.
Gróðurinn er þó ekki kominn til að vera. „Nei, gróðurinn vill Minjastofnun ekki,“ segir Uggi.
Flestum er eflaust kunnugt um Stangarbæinn en hann er einn þekktasti bær landsins frá þjóðveldisöld. Árið 2024 var opnuð ný yfirbygging yfir bæinn en þak hennar er glært og svipar hún til þaks gróðurhúsa.
Vikur til bjargar
Bærinn var grafinn upp árið 1936 í fornleifauppgreftri í Þjórsárdal. Fljótlega eftir uppgröftinn var reist skýli yfir bæinn og hefur yfirbygging bæjarins tekið á sig ýmsar myndir í gegnum árin en þetta er í fyrsta skipti sem glær yfirbygging hefur verið reist.
Uggi segir að búast hafi mátt við gróðursæld í húsinu vegna glæra þaksins en þó ekki svo miklum gróðri. Minjastofnun vinnur nú að lausn og hefur Uggi brugðið á það ráð að setja vikur á gólf bæjarins.
„Ég sem sagt tek gróðurinn upp, set svo jarðvegsdúk yfir og svo enda ég á því að setja vikur á gólfið.“
Uggi segir tilraunina lofa góðu og vonast til þess að klára verkið á næstu vikum. Hann segir að gróðurinn sem vaxið hefur úr torfum á hleðslum bæjarins sé ekki truflandi, græna grasið gefi bænum fallegan blæ.
Stöng fór í eyði eftir hamfaragos í Heklu árið 1104. Uggi segir að í sögulegu samhengi sé skondið að sá vikur sem settur er á gólfið sé úr því gosi sem lagði bæinn í eyði.