Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglu þar sem segir frá verkefnum dagsins. Fram kemur að árásin hafi átt sér stað á svæði lögreglustöðvar 4 sem nær yfir Árbæ, Grafarholt, Grafarvog, Úlfarsárdal og Mosfellsbæ. Segir að einnig hafi verið notast við dróna til að „ná utan um málið með góðum árangri“.
Í tilkynningunni segir einnig að tilkynnt hafi verið um stórfellda líkamsárás í 105 í Reykjavík þar sem þrír menn væru grunaðir og er málið í rannsókn.
Þá var tilkynnt um innbrot í geymslu í hverfi 105 og sömuleiðis innbrot í bíl þar sem munum var stolið.
Enn fremur segir að ökumaður hafi verið kærður fyrir að aka á 64 kílómetra hraða á hlukkustund þar sem leyfilegur hámarkshraði er 30. Ökumaðurinn var sviptur ökuréttindum til bráðabirgða.
Í Kópavogi var tilkynnt um þjófnað á leðurjakka úr einni búð og skópari úr annarri í sama verslunarkjarna.
Þá var haldinn ölvunarpóstur þar sem 143 ökumenn voru fengnir til að blása í áfengismæli. Þar voru þrír ökumenn sem blésu undir refsimörkum og var einn kærður fyrir að nota ekki öryggisbelti.