Ráðin skólameistari eftir „opinbera aftöku í fjölmiðlum“

Margréti Jónsdóttur Njarðvík var skipuð í embætti skólameistara Fjölbrautaskólans í Breiðholti til fimm ára frá 1. ágúst næstkomandi.
Skipunin kemur í kjölfar mikilla umbrota á fyrri vinnustað Margrétar. Þann 9. febrúar 2026 tilkynnti hún afsögn sína sem rektor Háskólans á Bifröst í Kastljósi á RÚV. Afsögnin fylgdi í kjölfar þess að Félag akademískra starfsmanna á Bifröst samþykkti vantrauststillögu á hendur henni og tveimur öðrum stjórnendum. Deilurnar hófust þegar stjórnendur kærðu þrjá kennara til siðanefndar vegna gruns um brot á höfundarrétti. Mat stjórnenda á fræðigreinunum hafði meðal annars verið byggt á gervigreindarforritinu Claude. Í sjónvarpsviðtali lýsti Margrét atburðarásinni sem „opinberri aftöku í fjölmiðlum“ en sagði það heillavænlegast fyrir skólann að hún stigi til hliðar þar sem ekki ríkti lengur sátt um hennar stjórnarhætti.
Margrét starfaði tæp sex ár sem rektor Háskólans á Bifröst frá 2020 – 2026. Hún starfið einnig átta ár í fjölbreyttum störfum hjá Háskólanum í Reykjavík sem lektor, dósent og forstöðumaður alþjóðasviðs. Áður starfaði hún í tæp 8 ár sem lektor og skorarformaður í Háskóla Íslands auk þess að hafa kennt spænsku við Kvennaskólann í Reykjavík, Menntaskólann í Reykjavík og Verzlunarskóla Íslands.
Margrét er með MBA-gráðu í stjórnun frá Háskólanum í Reykjavík auk doktorsgráðu í spænsku máli og bókmenntum frá Princeton University. Hún er með kennsluréttindi og lauk grunnnámi í spænsku við Háskóla Íslands.
Alls sóttu sjö um embættið.