„Ég fékk fullt af nei-um“

„Ég fékk fullt af nei-um“

„Ég fékk fullt af nei-um“

„Ég fékk fullt af nei-um“

knee - Svava Sigbertsdóttir
„Ég vann á daginn og þegar dóttir mín var sofnuð vann ég í að búa til þá aðferð sem heillaði mig og úr varð The Viking Method.
Mynd: Hjördís Bjarnadóttir

Svava Sigbertsdóttir einkaþjálfari er nú flutt heim eftir 22 ár í London en hún hefur verið að gera góða hluti með æfingaprógrami sínu The Viking Method. Í gegnum tíðina hefur hún þjálfað stórstjörnur á borð við Nicole Scherzinger, Amanda Holden og fyrirsætuna Suki Waterhouse. Árið 2019 gaf hún út bókina The Viking Method sem hefur heldur betur slegið í gegn. Nú er hún að fara af stað með nýtt prógramm sem lofar mjög góðu.

Svava er alin upp í Árbænum og segist alltaf hafa verið mjög mikið í íþróttum og tómstundum og þá helst í fótbolta, handbolta, dansi og kickboxi. Hún elskar að læra nýja hluti og stunda nýja hreyfingu. „Þegar ég var 24 ára fór ég í söngleikjanám til London í þrjú ár. Ég heillaðist svo af London að eftir það ákvað ég að flytja alfarið út með dóttur mína sem ég eignaðist þegar ég var 18 ára. Ég fann það svo að námi loknu að mig langaði svo miklu meira að vinna við hreyfingu og að hjálpa fólki að líða vel í sínum eigin líkama og huga.“

Fyrstu árin var hún í námi með vinnu og tók einkaþjálfarann, næringarfræði og jógakennarann. „Ég byrjaði að vinna sem þjálfari og sá fljótlega að það er alið upp í konum að útlit samsvari virði þeirra. Og ekki bara útlit, heldur mjög ákveðið útlit, útlit sem samfélagið segir að sé aðlaðandi. Og ef þú ert ekki akkúrat með það, ertu minna virði. Þetta getur svo stjórnað því hvernig við lítum á okkur sjálfar og metum okkar eigin líkama.“

Í kjölfar þess langaði Svövu að athuga hvort hún gæti hannað heilsumeðferð sem snerist á engan veg um ytra samþykki, heldur einungis um innri vellíðan. „Ég vann á daginn og þegar dóttir mín var sofnuð vann ég í að búa til þá aðferð sem heillaði mig og úr varð The Viking Method. Ég átti ekkert á þessum tíma, við vorum bara tvær, ég og dóttir mín, í landi þar sem ég hafði enga fjölskyldu, þekkti engan og hafði engin sambönd né tengslanet.“.

Ég fékk fullt af nei-um

Viking 4 - Svava Sigbertsdóttir
Mynd: Hjördís Bjarnadóttir

Það sem Svava bjó að var trúin á eigin getu og svo átti hún lausan tíma á kvöldin sem hún gat nýtt í þessa hugmyndavinnu. „Og það er nóg í byrjun. Það er ekki hægt að bíða þar til maður hefur meira eða bíða eftir hinum fullkomna tíma. Maður byrjar þar sem maður er með það sem maður hefur. Og restina lærir maður á leiðinni.“

Eftir að hún setti upp The Viking Method var mesta vinnan í rauninni eftir, það var að koma þessu áfram og kynna meðferðina. „Þú getur verið með frábæra vöru, en ef enginn veit af henni þá er eins og hún sé ekki til. Þannig eyddi ég mörgum mánuðum í að tala við líkamsræktarfrömuði, senda tölvupósta á fjölmiðlafólk til að fá umfjöllun og hafa samband við þekkt fólk til að fá að þjálfa það. Ég fékk fullt af nei-um, sem ég var alveg ókei með, af því að það versta sem þú færð er nei. Það er alltaf þess virði að spyrja og halda áfram að spyrja þar til þú færð já, sem ég svo byrjaði að fá frá öllum: ræktinni, fréttafólki og frægu fólki.“

Fylla þig af sjálfri þér

Viking 6 - Svava Sigbertsdóttir
Mynd: Hjördís Bjarnadóttir

Eftir mikla markaðsvinnu byrjaði Svava að þjálfa stjörnur á borð við Nicole Scherzinger, Suki Waterhouse og Amöndu Holden. „Ég var að þjálfa fólk í The Viking Method einkaþjálfun og bjó til online prógröm. Eftirspurnin jókst smátt og smátt á þessum tíma og með aukinni þátttöku fór orðið að berast á milli manna um ágæti þessarar meðferðar á líkama og sál. Fjölmiðlafólk kom á æfingar til mín og þjálfaði með mér ókeypis í marga mánuði og gerði svo grein fyrir því hverju aðferðin væri að skila sér. Ég gerði lítið annað á þessum árum en að vinna og vera með dóttur minni og hef reyndar alltaf elskað það; að sjá hve vel fólki líður eftir æfingarnar.

Í dag þjálfar Svava fólk út um allan heim. „Ég hef ferðast á heilsuhátíðir, ég fór til Tyrklands og vann þar með Hummel í heilsuauglýsingaherferð. Ég hef unnið með the North face, MTV, Victoria´s Secret, Lulu Lemon og fleirum. Fyrir nokkrum árum gaf bókaútgáfan Penguin The Viking Method bókina út á heimsvísu. The Viking Method snýst ekki um að líta út á einhvern ákveðinn hátt. Hún snýst meira um að líða á ákveðinn hátt og um að bæta stanslaust við sig góðum hlutum. Og að FYLLA ÞIG AF SJÁLFRI ÞÉR. Við erum yfirfull af neikvæðum sjálfs- og líkamsskoðunum, álitum annarra, lágu sjálfmati og fullkomnunaráráttu sem kemur ekki frá okkur. Við bjuggum þetta ekki til, heldur hefur þessum neikvæðu sjálfsviðhorfum verið plantað í okkur frá því við fæðumst. Þannig að með þessari aðferð erum við að taka stjórnina til baka. Henda út því sem er ekki að gera neitt fyrir okkur og ákveða sjálf hvað við viljum fylla okkur með. Það sem við trúum um sjálf okkur ræður hegðun okkar. Við erum að taka lygarnar út sem við fengum að utan.“

Svava vill að við hugsum um okkur eins og við værum Víkingar. „Ég flutti nýlega aftur heim eftir 22 ár í London vegna þess að dóttir mín flutti heim fyrir þremur árum út af vinnu sem hún fékk á Íslandi eftir að hún kláraði háskólanámið sitt í London, er að eignast dóttur. Og það er engin staður sem ég myndi frekar vilja vera á en með þeim.“

Algjört bull

kick - Svava Sigbertsdóttir
Mynd: Hjördís Bjarnadóttir

Síðustu misseri hefur Svava verið að vinna að nýju prógrammi. „Ég er búin að vera með konur í þjálfun hjá mér í nýja prógramminu og ætla mér að halda áfram með það með konum hér á Íslandi; sem ég er svo spennt fyrir. Og öll hugmyndafræði The Viking Method er í því. Þetta prógramm kallast Persónulega prógrammið. Það er algjörlega einstaklingsbundið og mjög persónulegt sem byggist þannig á að þú átt að geta vel ráðið við það.

Aðalástæðan fyrir því að konur gefast upp er ekki af því að þær eru ekki með nógu mikinn aga. Það er heldur ekki út af því að þær séu „of góðar við sig“ eða veikeðja, eða að ástæðan sé einhver aumingjaskapur. Það er ekkert rangt við einn eða neinn. Út af þessum stanslausa hávaða frá umheiminum um að konur eigi, verði, að líta út á einhvern ákveðinn hátt eru konur oft að setja sér röng markmið. Ég hef svo oft verið spurð út í þetta í viðtölum, hvað konur eigi að gera til að fá líkama eins og Nicole Scherzinger, og ég HATA þessa spurningu. Þessi stanslausi samanburður sem verið er að setja á okkur er svo óhollur að segja að líkami hennar eigi að vera eitthvað markmið fyrir okkar líkama. Það er algjört bull. Við erum allar með mismunandi líkama. Engir tveir líkamar eru eins. Þú gætir búið með Nicole, gert nákvæmlega allt það sama og hún gerir, og þú myndir ekki fá eins líkama og Nicole. Af því að engin getur verið með líkama eins og Nicole nema Nicole. Af því að það er hennar líkami. Alveg eins og það getur engin verið með líkamann þinn nema þú.“

Rangt markmið

Viking 2 - Svava Sigbertsdóttir
Mynd: Hjördís Bjarnadóttir

Svava vill endurforrita það hvernig við setjum okkur markmið. „Röngu markmiðin eru að líkaminn þinn verði að líta út á mjög ákveðinn hátt til að þú getir verið sátt við þinn líkama, og/eða þú þarft að sjá ákveðna tölu á vigtinni til að þú getir verið sátt við þinn líkama. Og þegar þú ert með þessi markmið, þá ertu að koma frá stað sem segir að þinn líkami sé „rangur“, að þú þurfir að taka eitthvað af þér eða frá þér. Þegar þú kemur frá þeim stað sérðu ekkert af því góða sem þú ert að fá með því að æfa, sérð ekkert af því jákvæða, aðeins að þú ert ekki enn með líkamann sem þú þarft að hafa og ert ekki í þyngdinni sem þú vildir vera í. Að æfa verður að refsingu fyrir það; þú ert ekki nógu góð eins og þú ert og þú þarft að æfa til að breyta því. Leiðin er allt eða ekkert. Það er ekkert hægt að setja þak á „allt.“. Þú ert aldrei að gera nóg og gætir alltaf gert meira. Engin getur haldið þessu áfram til frambúðar. Þarna gefast konur upp, auðvitað, og kenna sér svo um. Ástæðan er ekki, sem það er, að markmiðið og planið voru röng, heldur er ástæðan að þær eru ekki nógu agaðar, nógu öflugar, nógu góðar. Þessi ferill er svo endurtekinn aftur og aftur. Af því að ranga markmiðið og ranga planið eru alltaf endurtekin. Í Persónulega prógramminu hjá mér hendum við þessu í ruslið. Við erum að koma frá allt öðrum stað, með markmið og plan sem er rétt. Það er ekkert að þér og þínum líkama. Það eina sem við erum að gera er að bæta við þig. Það er EINA markmiðið. Bæta við þig styrk, bæta við þig krafti, snerpu, jafnvægi, liðleika og samhæfingu, og þegar þú kemur frá þeim stað sérðu allt í jákvæðara ljósi. Alla öflugu viðbætinguna í hvert einasta skipti sem þú æfir og það er svo geggjað að upplifa það.

Það fyrsta sem ætlast er til í nýju aðferðinni er að hittast. „Eftir að kona skráir sig í prógrammið, það fyrsta sem við gerum er að við hittumst. Við ræðum um allt sem viðkemur henni. Hennar samband við sjálfa sig, sinn líkama, hennar líf, hennar sjálfsálit og skoðanir, hvaðan þær koma og hvaða áhrif þær hafa haft, á ALLT. Við förum saman yfir hennar vikulegu lífsrútínu, því að allir hafa mismunandi tíma. Þú gætir haft 30 mín á mánudegi, 20 mín á fimmtudegi og 60 mín á laugardegi til að æfa. Allir eru mismunandi. Sérstaklega þegar þú ert að byrja á einhverju nýju, verður það að vera auðvelt að gera. Ég hanna sérhæft plan með allt þetta í huga. Það sem ég set upp er það eina sem hún á að gera. Ekkert meir. „Allt“ er með þaki. Prógrammið kemur svo bæði með hennar persónulega líkamlega æfingarprógrammi og einnig, sem er það mikilvægasta, af því það stjórnar svo hvað við gerum, með myndböndum sem eru fyrir hana persónulega til að bæta sambandið við sjálfa sig, bæta sjálfstraustið, sjálfsvirðinguna, innri styrk, kraft og vingjarnleika. Við erum að FYLLA OKKUR AF OKKUR SJÁLFUM. Þetta er þitt líf. Tími til kominn að taka risa pláss í því. Þú finnur Persónulega Prógrammið inni á vefsíðunni www.thevikingmethod.co.uk

#fullt #fékk #nei


Upprunaleg slóð:
https://mannlif.is/greinar/eg-fekk-fullt-af-nei-um/

📰 Aðrar fréttir

Leggur til að þing­menn verði 85 í stað 63 - Vísir
📅 01.10.2026 👁️ 0
Leggur til að þing­menn verði 85 í stað 63 - Vísir
Starfshópur á vegum dómsmálaráðuneytisins lagði nýlega til breytingar á kjördæmaskipan landsins en að fjöldi þingmanna yrði sá sami. Samkvæmt tillögum...
Réttarhöld framundan yfir manni sem ákærður er fyrir að nauðga konu og hrinda henni fram af stigapalli
📅 01.10.2026 👁️ 0
Réttarhöld framundan yfir manni sem ákærður er fyrir að nauðga konu og hrinda henni fram af stigapalli
Maður er ákærður fyrir nauðgun, frelsissviptingu og sérstaklega hættulega líkamsárás gagnvart konu. Atvik málsins urðu frá laugardegi til sunnudags ei...
Skref í rétta átt en óvíst hvort kjarasamningar haldi
📅 01.10.2026 👁️ 0
Skref í rétta átt en óvíst hvort kjarasamningar haldi
Formenn Samtaka atvinnulífsins og ASÍ eru sammála um að skilaboð forsætisráðherra séu skref í rétta átt og hjálpi til við samningaborðið. Forsætisráðh...
Boðar breytingu á veitingu dvalarleyfa
📅 01.10.2026 👁️ 0
Boðar breytingu á veitingu dvalarleyfa
Til stendur að hætta útgáfu dvalarleyfa til fólks utan EES sem kemur til Íslands í vistráðningu, það er sem au-pair. Markmiðið er að koma í veg fyrir ...
Celebrity Traitors: Chaos, coffins and ‘Claudiapatra’ steal the show
📅 01.10.2026 👁️ 0
Celebrity Traitors: Chaos, coffins and ‘Claudiapatra’ steal the show
There is paranoia, confusion and a battle to survive among the celebrities as they fight for survival.
„Strákar eigi bara ekki að gráta og tala um tilfinningar sínar“
📅 01.10.2026 👁️ 0
„Strákar eigi bara ekki að gráta og tala um tilfinningar sínar“
Andleg heilsa er eitt af stærstu umræðuefnum unglingsáranna og mikilvægt að tala um erfiðu hlutina. Þetta segja ungmenni sem tóku þátt í setningu Forv...
Svara loks sögusögnum um umboðsmanninn Magnús: „Við höfum bara alltaf haft gaman af þessari vitleysu“
📅 01.10.2026 👁️ 1
Svara loks sögusögnum um umboðsmanninn Magnús: „Við höfum bara alltaf haft gaman af þessari vitleysu“
Hljómsveitin Á móti sól fagnar 30 ára afmæli um þessar mundir og ætlar að halda upp á tímamótin með stórtónleikum í Háskólabíói í október, en í nýjum ...
Hvað veistu um... Mean Girls? - Vísir
📅 01.10.2026 👁️ 1
Hvað veistu um... Mean Girls? - Vísir
Myndin fjallar um stúlku, sem leikin er af Lindsay Lohan, sem byrjar í bandarískum menntaskóla eftir að hafa alist upp á erlendri grundu. Í skólanum k...
Hörður hættir vegna ágreinings
📅 01.10.2026 👁️ 1
Hörður hættir vegna ágreinings
Ástæða þess að Hörður Arnarson hefur ákveðið að láta af störfum sem forstjóri Landsvirkjunar er ágreiningur um stjórnarhætti. RÚV greinir frá þessu. H...
Margt eftir og stöðugt verið að uppfæra til að tryggja búsetu
📅 01.10.2026 👁️ 1
Margt eftir og stöðugt verið að uppfæra til að tryggja búsetu
Mikil vinna var lögð í fyrstu niðurstöður endurskoðaðs áhættumats í Grindavík sem birt var í síðustu viku. Skarphéðinn Berg Steinarsson verkefnisstjór...
Skipti engu hvort um­mælin hafi verið sett fram í kald­hæðni - Vísir
📅 01.10.2026 👁️ 1
Skipti engu hvort um­mælin hafi verið sett fram í kald­hæðni - Vísir
Nú hefur hefur dómur Landsréttar í málinu verið birtur en greint var frá því á Vísi í dag að Landsréttur hefði dæmt ummæli fimmtugrar konu í garð Ingó...
Ágreiningur um stjórnarhætti ástæða þess að Hörður hættir
📅 01.10.2026 👁️ 1
Ágreiningur um stjórnarhætti ástæða þess að Hörður hættir
Ástæða þess að Hörður Arnarson hefur ákveðið að láta af störfum sem forstjóri Landsvirkjunar er ágreiningur um stjórnarhætti.Hörður greindi frá ákvörð...
Írani grunaður um að skipu­leggja hryðju­verk við Fairford - Vísir
📅 01.10.2026 👁️ 1
Írani grunaður um að skipu­leggja hryðju­verk við Fairford - Vísir
Þetta hefur breska ríkisútvarpið eftir hryðjuverkadeild lögreglunnar á Bretlandi en þar segir að 27 ára karlmaður sem sé bæði með breskt og íranskt rí...
Írani grunaður um að skipu­leggja hryðju­verk - Vísir
📅 01.10.2026 👁️ 1
Írani grunaður um að skipu­leggja hryðju­verk - Vísir
Þetta hefur breska ríkisútvarpið eftir hryðjuverkadeild lögreglunnar á Bretlandi en þar segir að 27 ára karlmaður sem sé bæði með breskt og íranskt rí...
Össur segir Hannes stunda skipulagt einelti að hætti MAGA: „Þetta er hreint rugl“
📅 01.10.2026 👁️ 1
Össur segir Hannes stunda skipulagt einelti að hætti MAGA: „Þetta er hreint rugl“
Össur Skarphéðinsson, fyrrum ráðherra, segir Hannes Hólmstein Gissurarson, prófessor emeritus, vera forsprakka að einelti gagnvart Þorgerði Katrínu Gu...
Utanríkisráðherra Bandaríkjanna í heimsókn til Íslands
📅 01.10.2026 👁️ 1
Utanríkisráðherra Bandaríkjanna í heimsókn til Íslands
Marco Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, hefur þegið boð Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur utanríkisráðherra um heimsókn til Íslands og kemur til ...
Ófremdarástand vegna mótmæla ungmenna í Frakklandi
📅 01.10.2026 👁️ 1
Ófremdarástand vegna mótmæla ungmenna í Frakklandi
Framhaldsskólanemar í Frakklandi hafa komið saman víða um landið í dag til að mótmæla yfirfullum kennslustofum, skorti á kennurum, slæmu ástandi skóla...
Burnham warned Rosebank oil field could breach West Bank sanctions
📅 01.10.2026 👁️ 1
Burnham warned Rosebank oil field could breach West Bank sanctions
Campaigners and Green Party leader Zack Polanski raise concerns about Rosebank's ties to an Israeli firm.
Samtalið mikilvægt á umbrotatímum
📅 01.10.2026 👁️ 1
Samtalið mikilvægt á umbrotatímum
Það eru nú einhverjir mestu umbrotatímar í seinni tíð og því tímabært að hefja samtal um hvernig samfélagi við viljum búa í. Þetta segir forseti Íslan...
Putin warns West that Russia is ready to use every weapon to protect Kaliningrad
📅 01.10.2026 👁️ 1
Putin warns West that Russia is ready to use every weapon to protect Kaliningrad
Vladimir Putin insists Moscow is "not threatening anyone" and merely responding to statements by Western leaders.
Marco Rubio á leið til Ís­lands - Vísir
📅 01.10.2026 👁️ 1
Marco Rubio á leið til Ís­lands - Vísir
Frá þessu er greint í tilkynningu frá utanríkisráðuneytinu en þar er haft eftir Þorgerði að það sé mikið ánægjuefni að Rubio hafi þegið heimboðið „sem...
Pálína sakfelld fyrir meiðyrði gegn Ingó Veðurguð
📅 01.10.2026 👁️ 1
Pálína sakfelld fyrir meiðyrði gegn Ingó Veðurguð
Landsréttur hefur dæmt ummæli Pálínu Helgu Þórarinsdóttur, sem birtust sem athugasemd á Facebook við deilingu á frétt af Vísir.is, 22. mars 2022, dauð...
„Dapur­legt pólitískt út­spil hjá odd­vita Sam­fylkingar“ - Vísir
📅 01.10.2026 👁️ 1
„Dapur­legt pólitískt út­spil hjá odd­vita Sam­fylkingar“ - Vísir
Jónas Már Torfason oddviti Samfylkingarinnar greindi frá því í færslu í morgun að útboð Kópavogsbæjar vegna byggingar stúku við Kórinn hefði verið dæm...
Starfsfólk dýraathvarfs í uppnámi – Maður krafðist þess að fá að hafa samfarir við dýrin
📅 01.10.2026 👁️ 1
Starfsfólk dýraathvarfs í uppnámi – Maður krafðist þess að fá að hafa samfarir við dýrin
Truflaður maður mætti í dýraathvarf í Sviss og krafðist þess að fá geit til þess að borða. Þegar hann fékk neitun vildi hann fá næði til þess að eðlas...
Skipa hóp sem fær umboð til að semja um byggingu Tækniskóla í Reykjavík
📅 01.10.2026 👁️ 1
Skipa hóp sem fær umboð til að semja um byggingu Tækniskóla í Reykjavík
Borgarráð hefur samþykkt að skipa viðræðuhóp sem fær umboð til að semja við Tækniskólann um uppbyggingu nýs skóla í Reykjavík.Í fundargerð borgarráðs ...
Ekki búið að finna nýjan lög­reglu­stjóra hátt í hálfu ári síðar - Vísir
📅 01.10.2026 👁️ 1
Ekki búið að finna nýjan lög­reglu­stjóra hátt í hálfu ári síðar - Vísir
Lítil hreyfing var á ráðningarferlinu í sumar en nú er búið að skipa hæfnisnefnd sem mun meta hæfi þeirra sex einstaklinga sem sóttu um stöðuna í júní...
Konu gert að greiða Ingó miskabætur vegna ærumeiðandi ummæla
📅 01.10.2026 👁️ 1
Konu gert að greiða Ingó miskabætur vegna ærumeiðandi ummæla
Landsréttur hefur snúið við dómi héraðsdóms og gert konu að greiða Ingólfi Þórarinssyni, betur þekktum sem Ingó Veðurguð, miskabætur vegna ummæla sem ...
UK in talks with EU partners to release strategic fuel reserves if needed, BBC understands
📅 01.10.2026 👁️ 1
UK in talks with EU partners to release strategic fuel reserves if needed, BBC understands
President Donald Trump has threatened to ban diesel exports in a bid to ease prices in the US.
Ungt fólk kalli eftir samtali og stuðningi fullorðinna
📅 01.10.2026 👁️ 1
Ungt fólk kalli eftir samtali og stuðningi fullorðinna
Samtal og samkennd er yfirskrift forvarnardagsins sem er í dag. Í ár er sjónum beint sérstaklega að nemendum í 9. bekk grunnskóla og öllum nemendum í ...
Utanríkisráðherra Bandaríkjanna væntanlegur til Íslands
📅 01.10.2026 👁️ 1
Utanríkisráðherra Bandaríkjanna væntanlegur til Íslands
Marco Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, er væntanlegur til Íslands í næstu viku. Þetta kemur fram í tilkynningu frá utanríkisráðuneyti Íslands. ...
Al­var­lega slasaður eftir fall af svölum - Vísir
📅 01.10.2026 👁️ 1
Al­var­lega slasaður eftir fall af svölum - Vísir
Rúv greindi fyrst frá en Ari Magnús Benediktsson, framkvæmdastjóri Nestaks, segir við Vísi að starfmaðurinn hafi fallið við vinnu á þriðjudagsmorgni o...
28 sagt upp hjá Klettabæ
📅 01.10.2026 👁️ 1
28 sagt upp hjá Klettabæ
28 starfsmönnum Klettabæjar var sagt upp störfum í vikunni. Jóhanna M. Fleckenstein, framkvæmdastjóri og annar af tveimur eigendum Klettabæjar, segir ...
Örn Bárður Jónsson skrifar: Á hvaða leið er heimurinn?
📅 01.10.2026 👁️ 1
Örn Bárður Jónsson skrifar: Á hvaða leið er heimurinn?
Merkilegt hefur verið að upplifa viðbrögð við grein sem ég ritaði nýlega og birti í DV og tel mjög upplýsandi um áhrif íslam í heiminum. Greinin ber y...
Aftaka klúðrast en hvað gerist svo? – Örlög nokkurra dauðadæmdra fanga sem lifðu af aftöku sína
📅 01.10.2026 👁️ 1
Aftaka klúðrast en hvað gerist svo? – Örlög nokkurra dauðadæmdra fanga sem lifðu af aftöku sína
Margir eru í losti eftir að hafa lesið um misheppnaða aftöku morðingjans Christu Pike í morgun. Eftir tvo skammta af banvænum lyfjum sló hjartað enn þ...
Hótaði að senda menn á eftir stjúpsyni sínum
📅 01.10.2026 👁️ 1
Hótaði að senda menn á eftir stjúpsyni sínum
Landsréttur hefur staðfest úrskurð Héraðsdóms Reykjaness um að maður sem ákærður er fyrir brot í nánu sambandi víki út dómsal á meðan brotaþoli ber vi...
Stephanie Hegarty: What happened in the failed execution of Christa Pike?
📅 01.10.2026 👁️ 1
Stephanie Hegarty: What happened in the failed execution of Christa Pike?
The BBC's Stephanie Hegarty looks at why two attempts to execute the US convicted murderer by lethal injection failed.
Dual UK-Iranian national arrested over RAF Fairford incident
📅 01.10.2026 👁️ 1
Dual UK-Iranian national arrested over RAF Fairford incident
The 27-year-old man was arrested in Westminster, London, counter-terror police say.
Á­rekstur við Hamra­borg - Vísir
📅 01.10.2026 👁️ 1
Á­rekstur við Hamra­borg - Vísir
Þetta staðfestir Friðrik Theódórsson, varðstjóri hjá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu. Einn sjúkrabíll var sendur á vettvang og tækjabíll en var bei...
Engin að­stoð við próf­töku og litaðar nú­meraplötur - Vísir
📅 01.10.2026 👁️ 1
Engin að­stoð við próf­töku og litaðar nú­meraplötur - Vísir
Reglugerðarbreytingin er sögð liður í heildarendurskoðun á lagaumhverfi fyrir leigubifreiðaþjónustu samkvæmt tilkynningu á vef Stjórnarráðsins. Markmi...
Slasaðist alvarlega í vinnuslysi í Neskaupstað
📅 01.10.2026 👁️ 1
Slasaðist alvarlega í vinnuslysi í Neskaupstað
Starfsmaður verktakafyrirtækisins Nestaks slasaðist alvarlega í vinnuslysi á þriðjudag. Starfsmaðurinn, sem er karl á fertugsaldri, var fluttur á sjúk...
Skriðuviðvörun til morguns
📅 01.10.2026 👁️ 1
Skriðuviðvörun til morguns
„Við fengum nokkrar tilkynningar um aurskriður á Austfjörðum en ekkert alvarlegt sem olli tjóni eða lokaði vegum. En það er mjög mikið vatn á ferðinni...
Fires break out at French schools as students protest nationwide
📅 01.10.2026 👁️ 1
Fires break out at French schools as students protest nationwide
The French government holds a crisis meeting as demonstrations grow and become violent in places.
Norð­menn gerðu símaat í Tré­virki: „Ég er ingen kúnna um þetta“ - Vísir
📅 01.10.2026 👁️ 1
Norð­menn gerðu símaat í Tré­virki: „Ég er ingen kúnna um þetta“ - Vísir
Útvarpsmenn í þættinum Sentralbordet på NRK á norksa ríkisútvarpinu hringja reglulega símaöt innanlands og til útlanda og hringdu nýverið símaat í ísl...
Fjölmiðlar uppskera vantraustið sem þeir sá sjálfir
📅 01.10.2026 👁️ 0
Fjölmiðlar uppskera vantraustið sem þeir sá sjálfir
Rétt eins og á Íslandi eru blaðamenn ekki hlutlausir í Noregi. Sama gerist á Íslandi og það þarf ekki að leita langt til að finna slíka blaðamenn og f...
Upp­ör­vandi fréttir fyrir Demó­krata - Vísir
📅 01.10.2026 👁️ 0
Upp­ör­vandi fréttir fyrir Demó­krata - Vísir
Kosið verður þann 3. nóvember en nú þegar hafa að minnsta kosti 700 þúsund kosið í allavega þrjátíu ríkjum. Gögn segja svipaða sögu og kannanir hafa g...
Lagarde: Evrópa verður að þróa eigin gervigreind
📅 01.10.2026 👁️ 0
Lagarde: Evrópa verður að þróa eigin gervigreind
Lagarde: Evrópa verður að þróa eigin gervigreind Evr­ópski seðla­banka­stjór­inn Christ­ine Lag­ar­de seg­ir að evr­ópsk­ar fjár­mála­stofn­an­ir geti...
Upp­sagnir hjá Kletta­bæ - Vísir
📅 01.10.2026 👁️ 0
Upp­sagnir hjá Kletta­bæ - Vísir
Þetta segir í skriflegu svari Jóhönnu M. Fleckenstein, framkvæmdastjóra Klettabæjar, við fyrirspurn fréttastofu. Hjá Klettabæ starfa yfir fimm hundruð...
Harmageddon | Sadó-masókismi íslenskra kjósenda
📅 01.10.2026 👁️ 0
Harmageddon | Sadó-masókismi íslenskra kjósenda
HarmageddonÍ Harmageddon þætti dagsins veltum við fyrir okkur hversu þolinmóðir íslenskir kjósendur ætla að vera gagnvart Viðreisn og Samfylkingu sem ...
Tennessee halts executions after death row inmate Christa Pike survives hers
📅 01.10.2026 👁️ 0
Tennessee halts executions after death row inmate Christa Pike survives hers
Christa Pike was transported to hospital after the failed attempts. Her condition remains unknown.
Tennessee halts executions after Christa Pike survives two lethal injection attempts
📅 01.10.2026 👁️ 1
Tennessee halts executions after Christa Pike survives two lethal injection attempts
Pike had been on death row since she was convicted in 1996 for the murder of Colleen Slemmer.