Matvælastofnun hefur enn ekki náð að manna allar bakvaktir dýralækna á Suður- og Vesturlandi í sumar. Þetta kemur fram í tillkynningu á vef Mast.
Enginn er á bakvakt á Akranesi, í Borgarbyggð, Hvalfjarðarsveit og Skorradalshrepp á morgun og helgina. Einnig eru ómannaðar bakvaktir í Rangárþingi ytra og Rangárþingi eystra frá deginum í dag til 10. ágúst.
Mast segir að reynt hafi verið að manna allar vaktir.
Dýraeigendum sem þurfa á þjónustu dýralæknis að halda er bent á að hafa samband við dýralækna sem hafa áður sinnt dýrum þeirra eða aðra almennt starfandi dýralækna.