Þrjár konur fundust látnar í sjónum undan Brighton í Bretlandi í morgun. Ekki hafa verið borin kennsl á konurnar. Ekki er talið að fleiri séu í sjónum.
Greint er frá málinu í fréttavakt breska ríkisútvarpsins, BBC.
Þar segir að björgunarfólk hafi verið kallað út vegna þriggja kvenna í sjónum undan Madeira Drive klukkan 5:45 að staðartíma, eða 4:45 að íslenskum tíma. Fjöldi strandgæsluliða hafi komið að því að koma þeim í land, en þrjú björgunarskip komu að aðgerðinni.
Strandgæslan hefur hætt leit í sjónum. Stórt svæði í kringum ströndina er þó enn lokað en talsverður viðbúnaður er á svæðinu. Brighton-ströndin verður áfram lokuð almenningi fram á kvöld.
Adam Hayes, yfirmaður hjá lögreglunni í Brighton, segir atvikið hörmulegt.
„Rannsóknin er á algjöru frumstigi. Forgangur okkar er að bera kennsl á allar þrjár konur og hafa samband við nánustu aðstandendur. Ég veit að þetta atvik kann að valda miklum áhyggjum í samfélaginu og við vinnum staðfastlega að því með öðrum að því að átta okkur á því hvað skeði hér,“ sagði Hayes á blaðamannafundi.
„Þetta nær til þess að afla og yfirfara myndefni frá nærliggjandi svæði, meðal annars frá heimilum og fyrirtækjum.“
Þá bað Hayes vitni um að hafa samband við lögreglu.