Alls hefur Matvælastofnun, MAST, afhent þremur aðilum eftirlitsskýrslur um velferð dýra við hvalveiðar. Katrín Oddsdóttir, lögmaður hjá lögmannsstofu sem starfað hefur fyrir nokkur náttúruverndarsamtök sem barist hafa gegn hvalveiðum, fékk eftirlitsskýrslur afhentar en einnig Ríkisútvarpið og Sýn. Þetta kemur fram í svari MAST við fyrirspurn Morgunblaðsins.
MAST var spurð 5. júlí sl. hverjir hefðu fengið skýrslurnar afhentar, en í Morgunblaðinu mánudaginn 6. júlí birtist viðtal við Hrönn Ólínu Jörundsdóttur forstjóra MAST, þar sem hún neitaði því að eftirlitsskýrslurnar hefðu verið afhentar skipverjum Bandero sem Paul Watson hefur til skamms tíma haldið úti á Íslandsmiðum í því skyni að stöðva hvalveiðar. Í skýrslunum mátti m.a. sjá hnit sem sýndu veiðislóðir hvalveiðiskipanna.
Bandero birtist fljótlega
Þó leið ekki á löngu eftir að MAST sendi skýrslurnar úr húsi 25. júní þangað til báturinn Bandero sást á hvalveiðislóðinni, þannig að líkur bentu til að upplýsingar úr eftirlitsskýrslunum, sem sýndu m.a. staðsetningar felldra langreyða, hefðu borist skipverjunum.
Í framangreindu viðtali kvaðst Hrönn Ólína ekki hafa á hraðbergi upplýsingar um nöfn þeirra aðila sem fengu sendar eftirlitsskýrslur Hvals en hafnaði því þó að Bandero hefði verið þeirra á meðal. Spurð hvort hún gæti staðfest hvort innlendum samtökum hefðu verið afhentar upplýsingar sagðist hún „ekki hafa þann lista hjá sér“. Eftir að gagnrýni kom á skýrslurnar breytti MAST vinnulaginu og birti ekki aftur fyrrnefndar staðsetningar.
Beiðni um skýrslur endurtekin
En nú er loks komið svar frá MAST og komið upp úr kafinu hverjir fengu eftirlitsskýrslurnar afhentar. Listinn er ekki langur.
Fyrst er tiltekin lögmannsstofan Réttur – Aðalsteinsson & Partners. Segir MAST að fyrst hafi hún beðið um eina skýrslu þann 22. júní en í kjölfarið hafi beiðnin verið uppfærð og óskað eftir öllum eftirlitsgögnum vegna veiðanna 2026. Það var gert 24. júní.
„Eftirlitsskýrslur voru afhentar í tveimur atrennum. Skýrslur vegna veiða á tímabilinu 22. – 25. júní voru afhentar 30. júní. Viðkomandi hefur ekki fengið frekari gögn en á inni óafgreidda gagnabeiðni. Katrín Oddsdóttir fær þessar skýrslur afhentar en gagnabeiðnin er lögð fram í nafni Réttar – Aðalsteinssonar & Partners. Gagnabeiðnin sjálf ber ekki með sér að verið sé að sækja gögnin fyrir hönd náttúruverndarsamtaka en af samskiptum á seinni stigum að dæma má sjá að svo er,“ segir MAST í svarinu.
Er þar vísað til tölvupóstsamskipta við Katrínu 24. júní þar sem hún segir:
„Ég get því miður ekki sætt mig við að þetta verði ekki afhent fyrr en í næsta mánuði enda gæti ég hagsmuna þeirra náttúruverndarsamtaka sem láta sig málið varða og þurfa að fá gögnin jafnóðum til að geta sinnt aðhaldshlutverki sínu.“
Segir MAST Katrínu ekki hafa tilgreint hvaða samtök þetta séu.
Tók tíu daga að fá svarið
Um afhendingu skýrslnanna til annarra segir MAST:
„RÚV fær eftirlitsskýrslur afhentar vegna veiða á tímabilinu 22. – 25. júní þann 30. júní. Fréttastofa Sýnar fær eftirlitsskýrslur afhentar vegna veiða á tímabilinu 22. júní – 6. júlí þann 8. júlí sl.
Eftirlitsskýrslur hafa ekki verið afhentar öðrum.“
MAST biðst loks velvirðingar á töfum á svari við fyrirspurn Morgunblaðsins, þar sem mikil mannekla sé nú hjá stofnuninni vegna sumarfría. Það tók tíu daga að veita framangreind svör en mun skemmri tíma tók MAST þó að afhenda eftirlitsskýrslurnar sem málið hverfist um.
Hvalveiðar
- MAST var gagnrýnd fyrir að afhenda eftirlitsskýrslur sem gáfu m.a. upp staðsetningu veiðiskipa Hvals hf.
- Stofnunin breytti vinnubrögðum sínum í kjölfarið.
- Skip samtaka Pauls Watsons, Bandero, var komið á veiðislóðir Hvals skömmu eftir að skýrslurnar voru afhentar.
- Skýrslurnar fengu Katrín Oddsdóttir, RÚV og Sýn.
- Skilur ekkert í getgátum Kristjáns Loftssonar
Áframsendi skýrslurnar
Katrín Oddsdóttir lögmaður segir það ekkert leyndarmál að hún hafi fengið eftirlitsskýrslurnar afhentar. Í samtali við Morgunblaðið segist hún hafa fengið afhentar sex skýrslur frá Matvælastofnun og vera enn að bíða eftir að fá fleiri afhentar.
„Þetta eru gögn sem heyra undir upplýsingalög og MAST telur að eigi erindi við almenning svo ég skil ekkert um hvað þessar getgátur Kristjáns Loftssonar snúast í grunninn,“ segir hún.
„Ég sendi skýrsluna á mína umbjóðendur sem eru íslensk dýra- og náttúruverndarsamtök.“
Katrín vildi ekki gefa upp hvaða samtök það voru er blaðamaður leitaði eftir svörum.
Katrín hefur barist gegn hvalveiðum á Íslandi og sagði árið 2023 að stöðva þyrfti veiðarnar hið snarasta.
Fáðu þér áskrift til að lesa áfram
Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift.
Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu,
rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki
á mbl.is.