Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra segir samningsstöðu Íslands gagnvart Evrópusambandinu sterka um þessar mundir og að nú sé rétti tíminn til að kanna hvaða samningi Ísland geti náð. Hún gagnrýnir það sem hún segir villandi málflutning um kostnað mögulegrar ESB-aðildar.Þetta kemur fram í grein Þorgerðar í Morgunblaðinu í dag þar sem hún hvetur landsmenn til að samþykkja endurupptöku aðildarviðræðna við Evrópusambandið í þjóðaratkvæðagreiðslunni 29. ágúst næstkomandi.
Þorgerður ómyrk í máli: „Svona upplýsingaóreiða má ekki stýra umræðunni“