Þegar smáríki díla við stærri ríki
„Bandaríkin eru mögulega ógn gagnvart Íslandi, en helst við bandaríki Íslands, Grænland, Danmörk og Kanada,“ segir Sverrir Steinsson, lektor við Háskólann í Toronto. Á sama tíma sé meiri vilji innan Evrópusambandsins til að fá Ísland inn en áður. „Ísland er á strategískt mikilvægum stað í heiminum.“
Sverrir Steinsson er lektor við Munk School of Global Affairs & Public Policy við Háskólann í Toronto. Hann rannsakar alþjóðasamskipti – með áherslu á stafræna tækni jafnt sem áhrif stríðs á myndun ríkja og smáríkja í heimspólitíkinni. Svona blasir staða mála við honum, séð frá Kanada.
Þegar Sverrir birtist á tölvuskjánum, á skrifstofu sinni í Toronto, er honum heilsað með orðunum: Það er forvitnilegt að heyra í þér, þarna í Kanada, því nú erum við að fara að kjósa um hvort fara eigi í aðildarviðræður og það á skrýtnum tímum þegar sviðsmynd varnar- og öryggismála hefur verið að breytast og við þetta smáríki. Ætli það sé ekki útgangspunkturinn …
„Já, það er rétt, þetta eru skrýtnir tímar, mikil óvissa,“ segir hann. „Bandaríkin eru ekki sama ríki og við héldum að þau væru áður. Og það er eitt sem má búast við að þegar ríkir mikið óöryggi og mikil óvissa, þá …