Le Monde greinir frá því að hvatt sé til þátttöku í víðtækari mótmælum laugardaginn 17. október. Ólíkt mati yfirvalda segja nemendasamtökin þátttöku hafa aukist lítillega frá þriðjudeginum í síðustu viku.
Eins og Vísir fjallaði um fyrir helgi beinast mótmælin meðal annars að kennaraskorti, yfirfullum kennslustofum og skólahúsnæði í niðurníðslu. Þá höfðu stjórnvöld boðað þrjú þúsund afleysingakennara til að bregðast við ástandinu en mótmælendur töldu þær aðgerðir ekki nægja.
Greta mætti til stuðnings
Greta Thunberg heimsótti í morgun Paul-Éluard-menntaskólann í Saint-Denis, norðan Parísar, til að sýna nemendum stuðning. Skólinn var í fremstu röð í upphafi mótmælaöldunnar.
Samkvæmt umfjöllun Reuters fóru mótmælin að mestu friðsamlega fram en til átaka kom meðal annars í París, Lyon, Strasbourg og Nantes. Lögregla beitti táragasi og hluti mótmælenda grýtti lögreglu og vann skemmdarverk. Í Lyon var mótmælaganga stöðvuð eftir að hópur fólks fyrir framan meginkröfugönguna réðst á verslanir og bensínstöð og lenti í áflogi við lögreglu.
Langir skóladagar ofarlega á blaði
Stjórnvöld hafa jafnframt leitað eftir ábendingum nemenda á sérstökum samráðsvef. Í samantekt Le Monde á rúmlega sextíu þúsund ábendingum frá 6. til 8. október kemur fram að skipulag skóladagsins sé algengasta umkvörtunarefnið.
Um sjötíu prósent ábendinganna vörðuðu meðal annars langa skóladaga, eyður í stundatöflum, mikla heimavinnu og stutt matarhlé. Ástand skólabygginga og hitastig í þeim komu næst, en einnig var kvartað undan kennaraskorti og fjölmennum bekkjum.