Sveinn Andri gifti sig um helgina

Sveinn Andri Sveinsson
Mynd: Facebook
Lögmennirnir Vigdís Ósk Häsler Sveinsdóttir og Sveinn Andri Sveinsson gengu í hjónaband við hátíðlega athöfn í Dómkirkjunni í Reykjavík í gær.
Morgunblaðið greindi frá hjónabandinu.
Að lokinni athöfninni héldu brúðhjónin ásamt fjölskyldu og vinum í Sjálfstæðissalinn þar sem brúðkaupinu var fagnað með veglegri veislu.
Vigdís Ósk og Sveinn Andri fundu ástina á síðasta ári og hefur samband þeirra þróast hratt síðan. Fljótlega eftir að þau tóku saman hófu þau sambúð á heimili Sveins Andra og hafa síðan byggt upp líf sitt saman.