Tímabilskort í Strætó hækka um 3,45% í verði á fimmtudag. Þetta er önnur hækkun ársins og hafa kortin nú hækkað um 7,2% á einu ári.
Verð á 30 daga korti hækkar úr 11.600 kr. í 12.000 kr. og árskort fullorðinna hækkar úr 116.000 kr. í 120.000 kr. Stakt fargjald er óbreytt, 690 kr. fyrir fullorðna.
Ungmenni og aldraðir fá áfram helmingsafslátt og öryrkjar 70% afslátt og hækka kortin því í sama hlutfalli.
Í tilkynningu frá Strætó segir að ákvörðun um gjaldskrárhækkun sé í samræmi við stefnu fyrirtækisins um að verð hækki í takt við áætlaða hækkun vísitölu neysluverðs. Gjaldskráin sé endurskoðuð tvisvar á ári.
Gjaldskrá Strætó var síðast hækkuð í janúar. Þá hækkuðu stök fargjöld um 3% en tímabilskort um 3,6%.
Í viðtali við Morgunblaðið af því tilefni kom fram í máli Jóhannesar Svavars Rúnarssonar, forstjóra Strætó, að sú hækkun væri í samræmi við vænta hækkun vísitölu neysluverðs á árinu 2026. „Það er gert ráð fyrir því að vísitalan hækki um þrjú og hálft prósent á næsta ári [árið 2026] í þjóðhagsspá, ef ég man rétt,“ sagði Jóhannes.
Ársverðbólga hefur að vísu mælst nokkuð umfram þjóðhagsspána, eða í kringum 5%, en þó ljóst að uppsöfnuð hækkun á tímabilskortum hjá Strætó, 7,2%, er umfram almennt verðlag.