Ef Instagram færslurnar birtast ekki er ráð að endurhlaða (e. refresh) síðunni.
Mætt í brúðkaup aldarinnar
Hjúkrunarfræðingurinn og skvísan Þrúður Guðmundsdóttir lét sig ekki vanta í það sem hún kallar brúðkaup aldarinnar en vinkona hennar Anna Fríða Gísladóttir framkvæmdastjóri markaðssviðs hjá Nóa Siríus giftist ástinni sinni Sverri Fali Björnssyni við glæsilega athöfn og veislu á Ítalíu.
Íslenskur karlmaður sem vill veiða lax
Raunveruleikastjarnan Patrekur Jaime er vanur því að deila ofurskvísumyndum af sér á Instagram en skellti sér í veiði í síðustu viku og virtist njóta þess vel að rokka vöðlurnar. Hann segir að undir suður-ameríska blóðinu, bótoxinu og hárlengingunum leynist íslenskur karlmaður sem vill bara veiða lax.
Besta leiðin til að jafna sig á þynnku
Dorrit Moussaieff fyrrum forsetafrú, athafnakona og lífskúnstner hékk á hvolfi á Instagram og sagði að þetta væri besta leiðin til að jafna sig á þynnku.
Allra besti afmælis-nablinn
Guðrún Svava Egilsdóttir áhrifavaldur og sjónvarpsstjarna óskaði besta vini sínum Andra Má Eggertssyni, betur þekktur sem Nablinn, til hamingju með afmælið. Þau hafa verið öflugt tvíeyki á ýmsum viðburðum og skemmtunum.
Nablinn varð 28 ára 1. september. Hann hefur meðal annars vakið mikla athygli í íþróttafréttum og íslensku samkvæmislífi en hann ræddi við Vísi á einlægum nótum í vor.
Fyrirsæta í New York
Fyrirsætan Ava Hilmarsdóttir gerir það gott í fyrirsætubransanum í New York og birti myndasyrpu af sér á götum borgarinnar.
Fegurðardrottning á fjöllum
Sigríður Ósk Hrafnkellsdóttir Ungfrú Ísland 2026 er mætt til Bandaríkjanna og var agndofa yfir fegurð Smokey Mountains í Tennesee.
Heima er best
Listræni stjórnandinn Júnía Lín elskar að njóta lífsins heima á Íslandi en hún hefur fylgt tvíburasystur sinni Laufeyju um allan heim á tónleikaferðalagi og sér þar um listræna stjórnun á tónleikunum. Júnía rokkaði mjög skemmtilegt loðvesti sem hún fékk hjá íslenska hönnunarhúsinu Sunneva Design.
Og Laufey Lín kom líka til Íslands og átti hér góðar stundir. Hún gisti meðal annars á lúxushótelinu Deplum farm með fjölskyldu sinni og birti skemmtilegar myndir frá dvölinni þar.
Sjóðheitur í LA
New York gæinn Björn Boði Björnsson skellti sér á dögunum til Los Angeles með systur sinni Birgittu Líf.
Gat í naflann
Vinkonurnar Kristín Pétursdóttir og Birgitta Líf Björnsdóttir fengu sér gat í naflann hjá Emma Body Art á Laugavegi. LXS skvísurnar skelltu sér allar þangað til að fá einhver göt og sumar enduðu með fleiri en aðrar.
Og Birgitta Líf átti viðburðaríka viku en hún skellti sér í Reykjaböðin í Hveragerði sem voru að opna núna í byrjun september.
Mikið fjör hjá Brynhildi
Áhrifavaldurinn og hlaðvarpsstýran Brynhildur Gunnlaugsdóttir elskar að hafa gaman.
Afmæli í París
Ásgerður Diljá markaðsstýra Aurum skartgripaverslunar fór til Parísar yfir afmæli sitt með sínum heittelskaða Sólon Welding.
Afmælisdrottning í hvítu á Spáni
Fatahönnuðurinn Andrea Magnúsdóttir fagnaði afmæli sínu í sólinni á Spáni og afmæliskjóllinn var hinn glæsilegasti.
Alaska og Takk takk
Tónlistarstjarnan Alaska gerði bikiní með strákunum í Takk takk.
Skvísuferð
Viðskiptafræðingurinn Embla Hallfríðardóttir er í skvísuvinkonuhóp sem kallar sig Gúrkurnar og þær eru duglegar að ferðast og gera skemmtilega hluti. Nú eru þær staddar á Spáni og kunna sannarlega að njóta.
Eina maraþonið sem Móa tekur þátt í
Tískuunnandinn og áhrifavaldurinn Móeiður Lárusdóttir skellti sér í rauðvínsmaraþon í Bordeaux í Frakklandi og segir það eina maraþonið sem hún tekur þátt í.
Fagnaði ástinni
Hlaðvarpsstýran, áhrifavaldurinn og raunveruleikastjarnan Sunneva Einarsdóttir fagnaði brúðkaupi mágkonu sinnar Margrétar Bjarnadóttur og Ísaks Ernis á Ion hótelinu.