Ríkisstjórn Bretlands ætlar að beita sér gegn atvinnuleysi ungs fólks og fátækt og efla tengslin við Evrópusambandið. Þetta er meðal þess sem kom fram í stefnuræðu ríkisstjórnar Bretlands í morgun, sem Karl konungur flutti þinginu.
Ræða konungs hófst á viðvörunum um að heimurinn væri hverfull og hættulegur og að efnahagslegt öryggi landsins þyrfti að tryggja með bættum lífskjörum um allt land. Þá stendur til að styrkja efnahagslega samvinnu við Evrópusambandið. Keir Starmer, forsætisráðherra og leiðtogi Verkamannaflokksins, nefndi einnig í ræðu sinni til flokksmanna á mánudag að stefnt væri að því að efla tengslin við ESB, sem Bretar gengu úr 2020.
Ætla að berjast gegn fátækt
Stjórn Verkamannaflokksins hefur verið harðlega gagnrýnd fyrir að hafa ekki tekist að bæta lífskjör Breta. Fram kom í stefnuræðunni í morgun að stjórnin ætli að gera sitt besta til að draga úr fátækt barna og auka möguleika ungs fólks á að fá vinnu og lærlingsstöður.
Alls óvíst er þó hvort ríkisstjórninni verði breytt eftir nokkrar vikur eða mánuði og þá stefnumálunum mögulega líka. Hart hefur verið sótt að Starmer að segja af sér forsætisráðherraembættinu og fara úr leiðtogasæti Verkamannaflokksins.
Starmer ber enn traust til Streeting
Fjórir undirráðherrar sögðu af sér í gær og yfir 80 þingmenn hvöttu Starmer til að segja af sér. Þá voru um 100 þingmenn sem sendu frá sér yfirlýsingu honum til stuðnings. Breskir fjölmiðlar greindu frá því í morgun að Wes Streeting heilbrigðisráðherra væri að undirbúa afsögn sína. Hann ætli að freista þess að fá stuðning þess fjölda þingmanna sem þarf, 81, til að skoða Starmer á hólm í leiðtogakjöri.
Fram kom í tilkynningu frá forsætisráðuneytinu í dag að Streeting væri enn heilbrigðisráðherra og að Starmer bæri fullt traust til hans.