Útlit er fyrir að hlýjasti dagur sumarsins hingað til verði á föstudaginn, fari veðurspáin sem horfir.
Þetta segir veðurfræðingurinn Einar Sveinbjörnsson við mbl.is, en spáð er sólskini og 21 gráðu hita í Reykjavík klukkan 16 á föstudag.
Einar segir veðurblíðuna berast til landsins úr austri og norðaustri. Loftið sé hlýtt að uppruna og berist yfir hálendið.
„Það má ekki vera skýjað“
Er þetta ekki svolítið þvert á spár hérna í byrjun vikunnar?
„Jú, það má vera að það sé. Það hafa nú reyndar verið spár á kreiki annað slagið síðustu daga, með einhver hlýindi, ýmist á föstudegi, laugardegi, sunnudegi eða mánudegi, sem tengjast náttúrulega þessu hlýja lofti.“
Til að spáin rætist verður í fyrsta lagi að vera nægur landvindur til þess að halda hafgolunni í skefjum og í öðru lagi verður að vera sól allan daginn.
„Það má ekki vera skýjað,“ segir Einar en áréttar um leið að þó það verði megi gera ráð fyrir 15 til 16 stiga hita.
„Þannig að spáin er ágæt. Hafgolan er alltaf eitthvað sem kemur bara eftir því hvernig aðstæður eru. Þá auðvitað er strax kominn bara 11 til 12 stiga hiti um leið og hún verður.“
„Það er enn þá vika í þetta“
Hvernig verður svo restin af júní?
„Ja, ég hef nú ekkert spáð í það, skal ég segja þér. Þær eru dálítið rásandi langtímaveðurspárnar þessa dagana, frá því að vera með bara norðanátt og frekar svalt veður og yfir í það að vera bara með loft af allt öðrum uppruna sem er miklu hlýrra. En það er spáð dálítilli vætu suma dagana, það er allavega ekki verið að spá löngum þurrum kafla, en svo eru alltaf góðir dagar inni á milli.“
Ætli það verði rigning á þjóðhátíðardaginn, 17. júní?
„Ég er ekki farinn að skoða það einu sinni. Það er enn þá vika í þetta.“