Sveinn Ægir Birgisson, formaður stjórnarinnar segir ákveðna þætti í stjórn Péturs vera til skoðunar án þess að tilgreina hvers eðlis þessir þættir voru.
Málinu hefur ekki verið vísað til lögreglu að svo stöddu segir Sveinn aðspurður.
„Við þurfum að sjá hvað skoðunin leiðir í ljós,“ segir Sveinn Ægir.
Ekki náðist í Pétur Pétursson við vinnslu fréttarinnar. Hann var ráðinn slökkviliðsstjóri árið 2016 en auk menntunar sem slökkviliðs-, sjúkraflutninga- og eldvarnaeftirlistmaður er Pétur lærður kafari og garðyrkjufræðingur. Hann var áður aðstoðarslökkviliðsstjóri hjá Brunavörnum Árnessýslu og sinnti friðargæslu í Afganistan eitt ár.