Þá skellum við okkur til Grindavíkur þar sem skólastarf hefst í haust. Þar þarf í ýmis horn að líta þegar kemur að öryggi barnanna og við ræðum við bæjarsjórann í beinni.
Einnig tökum við stöðuna á hinu óhugnanlega máli í Reykholti sem nú er í aðalmeðferð hjá héraðsdómi Suðurlands.
Í sportpakka dagsins verður fjallað um stór tíðindi sem bárust úr Bestu deild karla í morgun þegar Stjarnan rak þjálfarann sinn sem hafði aðeins stýrt liðinu í fjórtán leikjum.