Guðni mun hafa aðsetur í sendiráði Íslands í Kaupmannahöfn. Þjóðkirkjan greinir frá ráðningunni en staðan var auglýst laus til umsóknar í vor.
Í tilkynningu segir að Guðni hafi þjónað í Lindakirkju í Kópavogi síðustu átján ár en hann var vígður prestur til KFUM og KFUK og KSH í júní 2006. Þá hefur hann gegnt margvíslegum trúnaðarstörfum innan Þjóðkirkjunnar, Hins íslenska Biblíufélags, sumarbúða KFUM og KFUK og Minningarsjóðs Bryndísar Klöru. Þá er hann sagður forsprakki og einn handritshöfunda barnaefnisins Daginn í dag.
Guðni lauk tveggja ára viðbótarnámi í Master of Theology með áherslu á sálgæslu og predikunarfræði í Luther Seminary í Saint Paul í Minnesota í Bandaríkjunum vorið 2017.
Hann er giftur Ásdísi Björnsdóttur enskukennara og eiga þau þrjú börn: Nóa Pétur, Dagmar Eddu og Signýju Náð.