Ráðherra kynnti breytingarnar upprunalega í vor en frumvarpið verður lagt fram í nóvember. Áformað er að fækka lögregluembættum um sex talsins og hefur ráðherra sagt skýrt að áformin feli ekki í sér fækkun lögreglustöðva eða lögreglumanna. Þvert á móti sé ætlunin að fjölga lögreglumönnum og þá eigi breytingarnar að styðja betur við störf lögreglu í landinu. Heyra má á Kristjáni Þór Kristjánssyni formanni bæjarráðs Ísafjarðarbæjar og oddvita Framsóknar í Reykjavík síðdegis að hann er efins um breytingarnar.
„Við svo sem erum ekkert að finna þetta upp með sjálfum okkur. Þessi umræða hefur verið víða um landið og við höfum verið á fundum, ég og bæjarstjóri, bæði hjá Samtökum íslenskra sveitarfélaga og svo á fjármálaráðstefnu og það hafa fleiri sveitarfélög haft áhyggjur af þessu, Fjarðabyggð, Vestmannaeyjar og fleiri, Suðurnesjabæ og víðar verið að setja sig upp á móti þessu.“
Það stendur ekki til að loka lögreglustöðinni á Ísafirði er það? Og ekki fækka lögreglumönnum?
„Nei, þeir segja það allavegana núna. Við höfum svo sem séð svona hluti áður þar sem ráðuneyti hafa ákveðið að miðstýra verkefnum og lofa bót og betrun og ekkert muni hverfa héðan frá, þannig að við erum svona ekkert alveg viss með það. Og við erum ekkert að taka þetta heldur upp með sjálfum okkur, heldur hafa lögreglumenn hér á svæðinu haft áhyggjur af þessu og komið til okkar og lýst yfir áhyggjum af þessu.“
Hann segir ýmislegt valda lögreglumönnum áhyggjum á svæðinu. Lögreglustjórinn á Vestfjörðum hafi gegnt fleiri hlutverkum heldur en bara því að stýra lögregluembættinu.
„Hann hefur verið í lykilhlutverki í almannavörnum á svæðinu og er í góðum tengslum við almannavarnadeild og situr þar inni með sveitarfélögum og björgunarsveit og öðru slíku. Við þekkjum það alveg hér á veturna í gegnum tíðina að náttúruvá stendur okkur oft nærri, við hættu á náttúruvá þá þurfum við á öllu okkar fólki að halda og allt skipulagið sé gott í kringum það.“
Skipulag þurfi að fara fram í næsta nágrenni. Ekki sé auðvelt að fara á milli Ísafjarðarbæjar og annarra sveitarfélaga á Vestfjörðum, hvað þá ef það væri lengra í burtu að sögn Kristjáns.
„Þessir lögreglumenn hafa líka haft áhyggjur af því að við vitum ekki hvað verður um rannsóknardeildina hérna og það skiptir líka máli, það þurfa að vera snögg viðbrögð þar líka. Þannig það er allt mjög óljóst í þessu og ég efast ekkert um að eitthvað Excel skjal sýni fram á að þó það eigi ekki að fara með sparnað í þessu, þá finnst mér það vera undirliggjandi ákvæði í þessu því ég sé það ekki öðruvísi. Ég sé ekki hvernig þetta mun styrkja lögregluembættið hér á Vestfjörðum eða fyrir norðan eða sunnan með því að fækka lögreglustjórum í einn.“
Þið mótmælið og Austfirðingar eru líka á móti þessu, það á að sameina þar, Eyjamenn og Austfirðingar vilja ekki vera í sama lögregluembætti, en þetta verður samt sem áður, ekki rétt? Er verið að fara algjörlega gegn vilja ykkar, landsbyggðarinnar?
„Já og einhverju leyti eins og mér heyrist líka lögregluembættanna. Það er nýbúið að sameina sýslumannsembættin og nú eru það lögreglustjóraembættin og það kæmi mér ekki á óvart ef þið mynduð hringja í mig eftir eitt eða tvö ár þegar þau fara að spá í héraðsdómum, að fækka þeim. Þannig þetta virðist einhvern veginn vera nýrrar ríkisstjórnar að grafa pínulítið undan landsbyggðinni og við höfum stórar áhyggjur af þessu.“
En dómsmálaráðherra segir að stærri embætti gefi þá meiri sérhæfingu og geri lögreglunni betur kleift að takast á við skipulagða brotastarfsemi og kannski flóknari mál. Eru það ekki sterk rök?
„Jú, en við höfum líka áhyggjur af nærumhverfinu og löggæslu þar líka, ég held þetta þurfi ekkert endilega að tengjast við það heldur. Ríkislögreglustjóri gæti náttúrulega líka séð um það embætti, að sjá um skipulagða glæpastarfsemi og haft það í Reykjavík og verið í góðum viðræðum við lögreglustjóra úti á landi þó að þeir séu níu, sjö eða þrír.“