Gervigreind er þegar farin að breyta störfum og búist er við að áhrif hennar á vinnumarkaðinn verði víðtæk á komandi árum. Þá er nýútkomin skýrsla Vörðu, rannsóknarstofnunar atvinnulífsins, um áhrif tækni- og loftslagsbreytinga á störf launafólks. Kristín Heba Gísladóttir, framkvæmdastjóri Vörðu, segir launafólk í heildina litið líta þessa tækniþróun björtum augum þó hægt sé að sjá mun á milli starfsstétta.
Fjórðungur telur að starf sitt muni breytast á næstu árum
Niðurstöður skýrslunnar leiða í ljós að fjórðungur starfsmanna innan ASÍ og BSRB telur að starf sitt muni taka breytingum á næstu árum í ljósi tækni- og loftslagsbreytinga. Launafólk telur áhrif þróunarinnar bæði góð og slæm.
„Almennt séð getum við sagt að launafólk telji talsverðan ávinning í þeim tæknibreytingum sem við erum að horfa fram á og að þær geti einfaldað störf þess.“
En niðurstöðurnar leggjast þó mismunandi á hópa, þeir sem eru með hærri tekjur sjá sóknarfæri á meðan þeir sem eru með lægri tekjur hafa meiri áhyggjur af stöðu sinni.
„Þeir sem eru með lægri tekjur, innflytjendur líka, hafa áhyggjur af starfsöryggi sínu í tengslum við þessar breytingar en þeir sem eru með hærri tekjur sjá meiri ávinning í því að þetta muni einfalda störf þeirra.“
Gervigreindin sé notuð í starfsmannavali
„Hver mun hagnast á öld gervigreindar?“ er meðal þess sem kannað er í rannsóknarverkefninu Stafræn samfélög, tækni og gervigreind sem Háskóli Íslands hleypti af stokkunum um mánaðamótin. Guðbjörg Linda Rafnsdóttir, prófessor í félagsfræði við Háskóla Íslands, segir að gervigreindin hafi fyrst einungis verið notuð hjá stórfyrirtækjunum í miklum mæli, það hafi þó breyst talsvert í dag.
„Nú er farið að nota þessa tegund tækni talsvert víða, bæði í minni fyrirtækjum og hér á Íslandi líka.“
Það er ekki óalgengt að fólk nýti sér hjálp gervigreindar til þess að betrumbæta ferilskrár og starfsumsóknir og að fyrirtæki nýti sér sömuleiðis gervigreind til þess að sía út þær umsóknir sem þykja hvað álitlegastar. Guðbjörg segir þetta skiljanlega þróun en þó séu ákveðnir annmarkar sem fylgi því að láta gervigreind taka ákvarðanir um einstaklinga.
Þegar gervigreindin skoðar umsóknir leitar hún bæði í almennum gagnagrunni og getur sömuleiðis rekið rafrænt fótspor hvers og eins; hún er landamæralaus sem hefur sína kosti og galla.
„Hún dregur ályktanir út frá rafrænum fótsporum fólks sem hún telur að líkist viðkomandi. Ef það væri verið að vinna með mig þá getur hún ályktað: Ég er kona á þessum aldri og hef unnið við þetta og þessar konur eru svona eða hinsegin.“
Guðbjörg segir að komið hafi í ljós að gervigreindin viðhaldi ákveðnum staðalímyndum með þessum hætti.
Svartkassavandamálið
Það getur verið gott að nýta gervigreindina þegar á við til dæmis til að sigta út hvaða umsækjendur eru með bílpróf. Hins vegar þegar gervigreindin er spurð hver umsækjenda sé hæfastur leikur hún lausum hala. Guðbjörg segir þetta kallast svartkassavandamálið.
„Þú veist ekki hvers vegna hún kemur með þessa fimm einstaklinga sem hún taldi hæfasta, af því að hún er að vinna út frá þeim upplýsingum sem hún er mötuð af en hún er líka að vinna út frá rafrænum sporum og dregur ályktanir um hæfni út frá einhverju sem hún telur að sé skynsamlegt.“