Segir enn erfitt að rifja upp ofbeldið í Reykholti

Segir enn erfitt að rifja upp ofbeldið í Reykholti

Segir enn erfitt að rifja upp ofbeldið í Reykholti

Fjórði dagur aðalmeðferðar í Reykholtsmálinu svokallaða hófst með skýrslutöku af brotaþola í málinu. Maðurinn er 61 árs gamall Palestínumaður með maltneskt ríkisfang.

Sex Íslendingar, fimm karlar og ein kona, eru ákærð fyrir að halda manninum föngnum á heimili sínu í Reykholti í Bláskógabyggð og beita hann harkalegu ofbeldi til þess að hafa af honum fé í apríl 2024.

Maðurinn hefur áður gefið skýrslu fyrir dómi. Það getur gerst á fyrri stigum máls þegar óvíst er hvort hægt sé að kalla fólk til við aðalmeðferð.

Nokkuð ósamræmi var á milli frásagnar brotaþola og þess sem aðrir ákærðu í málinu sögðu fyrir dómi. Hann sagði þátt margra hinna ákærðu mun stærri en þeir hafa lýst fyrir dómi. Þá var einnig nokkuð um ósamræmi á milli frásagnar brotaþola og þess sem fram hefur komið í gögnum málsins.

Alls gáfu fjórir skýrslu í dag: brotaþoli, fyrrverandi eiginkona hans og dóttir og fyrrverandi eiginkona eins ákærða.

Réðust fjögur inn á föstudagskvöldi

Brotaþoli segir að hann hafi verið sofandi þegar fjórir komu að heimili hans á föstudagskvöldi. Hann segir það ekki tíðkast í Reykholti að læsa dyrum og því hafi fólkið gengið beint inn.

Þeir sem hafi komið í fyrstu hafi verið Andri Már Mortensen Birgisson og unnusta hans Ingunn Rut Sigurðardóttir. Með þeim í för hafi verið stór maður og annar lítill.

Stóri maðurinn hafi haldið honum og Ingunn og Andri hafi byrjað að lemja hann. Hann hafi fallið í gólfið og þá hafi verið sparkað í hann. Stuttu síðar hafi hann verið bundinn með einhvers konar benslum og honum komið fyrir í sturtubotni í íbúð sinni.

Hann segir að Ingunn hafi verið með einhvers konar járn á höndunum, líkt og hnúajárn, sem hún hafi notað til þess að berja á sér. Þetta stangast á við það sem Ingunn játaði fyrir dómi í gær en þar sagðist hún ekki hafa beitt manninn ofbeldi.

Brotaþoli segir Andra aðallega hafa beitt höndunum við ofbeldið en hann hafi ítrekað mundað vopn sem hann notaði til að ógna. Meðal annars hafi hann sett hníf við háls hans og mundað eitthvað sem hann taldi hafa verið byssa. Hún hafi verið smá en ekki skammbyssa. Þegar borin var undir hann mynd af afskorinni haglabyssu sem fannst á heimili Andra kannaðist hann við hana.

Brotaþoli segir að eftir að hann var beittur ofbeldi hafi honum verið komið fyrir í sturtubotni þar sem hann hafðist við fram á mánudagsmorgun. Hann hafi þá verið bundinn á höndum og fótum.

Segir tengdaföðurinn hafa komið alla dagana

Maðurinn segir að faðir Ingunnar hafi komið alla dagana meðan á frelsissviptingu hans stóð, frá föstudegi yfir á mánudag.

Hann hafi hótað honum með verkfæri sem notað sé til að vinna með tré. Áður hefur verið talað um að hann hafi hótað manninum með keðjusög.

Þetta er andstætt því sem tengdafaðirinn sagði fyrir rétti. Þar sagðist hann einungis hafa hitt brotaþola á sunnudeginum og hefði ekki vitað að hann hefði þá verið beittur ofbeldi. Hann hefði einungis heyrt af því eftir að maðurinn var farinn úr landi.

Annað sem tengdafaðirinn sagði var að brotaþoli hefði faðmað sig áður en hann fór úr landi og sagt við hann að hann væri „góður maður“.

Brotaþoli vísaði því á bug í dag.

Alvarlegir áverkar

Samkvæmt ákæru hlaut maðurinn alvarlega áverka og hlaut blæðingu í framheila, mar kringum hægra auga, brot í nefbeini, bólgu á hægri kjálka, brot bæði hægra og vinstra megin á kjálka, brot á fjórum tönnum, tapaði 15 tönnum og krónutap á tveimur tönnum, mar við vanga og á hálsi, húðtap á aftanverðum hálsi, fjögur rifbeinsbrot, mar á hægri handlegg, 20 cm mar á vinstri síðu með hrúðri miðlægt, mar á vinstri síðu, 10 cm mar á ofanverðum brjóstvegg vinstra megin og skrámur á baki og síðum.

Þá hafi maðurinn heldur ekki neytt matar eða drykkjar frá föstudegi fram á mánudag.

Hann sagðist enn finna til þrátt fyrir að hafa undirgengist skurðaðgerð á kjálka og ætti enn erfitt með að neyta matar.

Farðaður til að fela áverka

Brotaþoli segist ekki hafa vitað hvaða dagur var á meðan frelsissviptingunni stóð. Þegar réttargæslumaður hans bað hann að rifja upp hvernig honum leið á meðan sagði hann það of erfitt. Hann ætti enn erfitt með að minnast þess sem hann varð fyrir og hvort það hafi verið raunverulegt eða ekki.

Á mánudeginum, eftir að hafa verið í haldi síðan á föstudag, hafi tengdafaðir Andra Más tilkynnt honum að senda ætti hann til Möltu. Honum hafi verið hótað að ef hann færi ekki myndi stóri maðurinn beita dóttur hans ofbeldi. „Þess vegna var ég hræddur og hugsaði að ég ætti að fara til Möltu,“ sagði maðurinn.

„Í þessa fjóra daga spurðu þau mig endalaust um rafræn skilríki en ég gaf ekki upp rafræn skilríki mín,“ sagði hann og lýsti því að Ingunn, Andri og bróðir hans hafi setið á rúmi mannsins og verið í tölvunni hans.

Brotaþoli sagði að bróðir Andra hefði einnig beitt sig ofbeldi sem stangast á við það sem hann sagði fyrir rétti í gær.

Á mánudeginum hafi hann svo loks verið sendur í sturtu og farðaður til að hylja áverka. Hann segir að mikið blóð hafi verið á höndum hans og andliti fyrir það. Pakkað hafi verið í litla tösku fyrir hann. Í henni hafi reynst vera fartölva þegar hann kom til Möltu.

Því næst hafi verið haldið til Reykjavíkur í bíl sem brotaþoli taldi í eigu bróður Andra. Stoppað hafi verið í verslun Símans fyrir flugferðina. Hann hafi þar verið beðinn að kvitta undir eyðublað.

Sækjandi spilaði myndbandsupptöku við réttarhöldin sem sýndi það sem virtist vera brotaþoli, Andra og Ingunni í verslun Símans þessu til stuðnings.

Eftir þetta hafi verið haldið upp á flugvöll. „Ég var í mjög slæmu ástandi,“ segir maðurinn.

Á flugvellinum hafi Andri fylgt honum upp stigann í átt að öryggisleitinni á flugvellinum og hann síðan flogið til Frakklands og þaðan til Möltu. Hann sagðist ekki hafa rætt við neinn, hvorki á meðan hann var á flugvellinum á Íslandi né í París.

„Um leið og ég kom til Möltu talaði ég við dóttur mína og fór síðan á spítala. Eftir það spurði lögregla á Möltu hvort ég vildi vera þar eða fara aftur til Íslands,“ sagði hann. Samkvæmt vitnisburði hans fór hann heim til fyrrverandi konu sinnar með leigubíl og kom dóttir hans þangað.

Kjálkinn hafi ekki verið á réttum stað

Teknar voru skýrslur af fyrrverandi eiginkonu brotaþola og dóttur hans í gegnum fjarfundarbúnað í dag. Dóttirin gaf fyrst skýrslu og sagði að hún hefði keyrt beint heim til móður sinnar eftir að brotaþola hefði borið að garði. Hún segist hafa sagt móður sinni að koma ekki við hann.

„Hann var í mjög slæmu ástandi, augljóslega með áverka. Hann var ringlaður og með blóð og mar á sér,“ sagði hún.

Fyrrverandi eiginkona hans lýsti því að kjálki mannsins hefði ekki verið á réttum stað. Þá hefði allt andlit hans verið mjög bólgið og hann ekki líkur sjálfum sér.

Dóttirin sagði að maðurinn hefði átt erfitt með að tala en hann hefði nefnt nöfn nokkurra þeirra sem beittu hann ofbeldi. Þar hafi hann nefnt Andra, tengdaföðurinn og dóttur hans Ingunni.

„Fyrst var ég hræddur en lögreglan á Möltu sagði mér að ég ætti ekki að vera hræddur. Lögreglan á Íslandi myndi vernda mig,“ sagði brotaþoli sem þakkaði lögreglu á Möltu og Íslandi og öllu starfsfólki sem hjálpaði honum.

„Ég kom til Íslands og sagði þar lögreglunni hvað hafði gerst,“ sagði hann. „Sem betur fer því þau hugsuðu um mig. Líka fólkið sem er í þessum sveitabæ. Þau hugsuðu um mig og hjálpuðu mér. Ég er mjög þakklátur fyrir það.“

Dóttirin sagðist vera í meiri samskiptum við föður sinn í dag en fyrir atvikið. Hann væri enn hræddur eftir ofbeldið og fyndi fyrir miklum sársauka. Hann ætti erfitt með að borða og sofa og fengi martraðir. Hann óttist enn að einhver skaði dóttur sína.

Var leiguskuld eða ekki?

Áður hefur verið talað um að rótin að öllu í málinu hafi verið leiguskuld til tengdaföðursins sem brotaþoli leigði af húsnæði. Samkvæmt vitnisburði brotaþola hafði hann búið í húsnæðinu í fjögur ár. Hann sagðist aldrei hafa sleppt úr greiðslum á leigu og vísaði því ítrekað á bug við réttarhöldin að einhvers konar leiguskuld hafi verið til staðar.

Sækjandi í málinu bar undir hann upptöku þar sem brotaþoli og Andri voru sagðir ræða um leiguskuld. Þar heyrðist það sem virtist vera brotaþoli „Ég mun borga, ekki hafa áhyggjur, ég mun borga.“

Eftir að upptakan var borin undir hann mundi brotaþoli betur eftir málinu og sagði samtalið vissulega hafa snúist um vangreidda leigu en hann hafi borgað hana í reiðufé.

Áður hafði brotaþoli sagt að hann hefði aldrei rætt umrædda leiguskuld við Andra.

Hvers konar spurningar eru þetta?

Verjandi tengdaföður Andra spurði manninn nánar út í þetta. Hann sagði að í þinglýstum leigusamningi hefði staðið að greiða hefði átt 75 þúsund krónur fyrir húsnæðið með hita og rafmagni.

Brotaþoli sagði að hann hefði þó greitt 50 þúsund krónur á mánuði. Samningur hefði verið á milli hans og tengfaföðursins um fyrirkomulagið. Upphæðin fyrir leiguna hefði vísvitandi verið höfð hærri vegna húsnæðisbóta.

Hann hafi því fengið greiddar húsnæðisbætur en þegar það hafi uppgötvast að tekjur hans voru of háar hafi hann þurft að greiða þær til baka.

Þegar verjandi spurði hvort hann hefði hætt að greiða leigu á þeim tíma sem hann var í vinnu í sláturhúsinu á Húsavík komst brotaþoli í nokkuð uppnám.

„Fyrirgefðu, hvers konar spurningar eru þetta?“ spurði hann og benti verjanda á að hann gæti athugað málið nánar með því að skoða bankayfirlit.

Verjandinn spurði brotaþola þá út í afleiðingarnar af helginni og hvort hann væri búinn að jafna sig líkamlega. Löng þögn tók þá við áður en hann svaraði. „Finnst þér ég orðinn betri?“

Nokkuð um ósamræmi

Ásamt því að ósamræmi sé á milli þess sem brotaþoli hefur sagt og annarra sem eru ákærðir stangast sumar frásagnir á við það sem komið hefur fram í gögnum málsins.

Sem dæmi má nefna myndbandsupptökuna sem spiluð var fyrir rétti þar sem Andri og brotaþoli virðast takast á um leiguskuldina.

Annað sem stangast á er að Andri segir brotaþola hafa sloppið úr haldi á einhverjum tímapunkti yfir helgina. Samkvæmt ákæru var maðurinn þá eltur uppi og beittur meira ofbeldi. Upptökur í málinu styðja þetta að nokkru leyti. Þegar brotaþoli var spurður út í þetta sagðist hann ekki muna til að hann hefði sloppið.

Þá sagði brotaþoli einnig að Ingunn hefði verið á staðnum frá upphafi þegar ráðist var á hann á föstudeginum. Samkvæmt upptökum sem spilaðar hafa verið fyrir rétti virðist það ekki vera rétt.

#enn #erfitt #rifja #segir #upp


Upprunaleg slóð:
https://nyr.ruv.is/frettir/innlent/2026-08-20-segir-enn-erfitt-ad-rifja-upp-ofbeldid-i-reykholti-484424

📰 Aðrar fréttir

Gagnrýnir sinnuleysi stjórnvalda í garð Bandaríkjanna
📅 05.10.2026 👁️ 1
Gagnrýnir sinnuleysi stjórnvalda í garð Bandaríkjanna
Pawel Bartoszek, þingmaður Viðreisnar og formaður utanríkismálanefndar Alþingis, og Diljá Mist Einarsdóttir, sem situr í nefndinni fyrir hönd Sjálfstæ...
Aug­lýsinga­tekjur Rúv undir fyrir­huguðu þaki þrjú ár í röð - Vísir
📅 05.10.2026 👁️ 1
Aug­lýsinga­tekjur Rúv undir fyrir­huguðu þaki þrjú ár í röð - Vísir
Í frumvarpsdrögum menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytisins er lagt til að framlag ríkisins til RÚV lækki ef tekjur félagsins af viðskiptaboðum ...
Leita að karlmönnunum sem tala um stóra málið – „Mjög afhjúpandi um hversu rótgróin nauðgunarmenning er í okkar samfélagi“
📅 05.10.2026 👁️ 1
Leita að karlmönnunum sem tala um stóra málið – „Mjög afhjúpandi um hversu rótgróin nauðgunarmenning er í okkar samfélagi“
„Það eru vissulega ekki allir karlmenn sem nauðga, en það eru alltof margir, og ennþá fleiri sem gera ekkert til að stöðva það. Þar liggur hundurinn g...
Idol-keppandi í lífs­tíðar­fangelsi fyrir að skjóta eigin­konu sína - Vísir
📅 05.10.2026 👁️ 1
Idol-keppandi í lífs­tíðar­fangelsi fyrir að skjóta eigin­konu sína - Vísir
Á þessum tíma stóð Flynn í sambandi við aðra konu sem hann hafði kynnst í gegnum kirkju þar sem hann söng. Kvöldið áður en morðið var framið sendi han...
The Blue Planet and Gandhi composer George Fenton dies aged 76
📅 05.10.2026 👁️ 1
The Blue Planet and Gandhi composer George Fenton dies aged 76
The musician received five Oscar nominations, and soundtracked dozens of memorable nature films.
Jeffrey Archer: Best-selling author and former politician dies aged 86
📅 05.10.2026 👁️ 1
Jeffrey Archer: Best-selling author and former politician dies aged 86
His last book, Adam and Eve, is set to release this month.
Mikið mæddi á vegum í vatnsveðri síðustu daga
📅 05.10.2026 👁️ 1
Mikið mæddi á vegum í vatnsveðri síðustu daga
Rigningar síðustu daga hafa valdið skemmdum á vegum víða um land, og malarvegir hafa orðið verst úti. Þá hafa skriður og grjót fallið á vegi á Vestfjö...
Hvað veistu um... ís­lenska hönnun? - Vísir
📅 05.10.2026 👁️ 2
Hvað veistu um... ís­lenska hönnun? - Vísir
Gróska hefur verið í íslenskri hönnun á ýmsum sviðum, allt frá fata- og húsgagnahönnun til grafískrar hönnunar og vöruhönnunar. Á morgun hefst átakið ...
Fun­heit í fimm ára af­mæli - Vísir
📅 05.10.2026 👁️ 2
Fun­heit í fimm ára af­mæli - Vísir
Allar helstu poppstjörnur landsins tróðu upp, allt frá rísandi stjörnunni Alösku og ungstirnunum Maroni Birni og Elvari Orra yfir í reynsluboltana Jóa...
Orðið á götunni: Fréttamaður í undarlegum leiðangri
📅 05.10.2026 👁️ 2
Orðið á götunni: Fréttamaður í undarlegum leiðangri
Athygli vakti í síðustu viku þegar fréttamaður Sýnar elti Ingu Sæland frá dyrum Menntaskólans í Reykjavík sem hélt upp á 180 ára afmæli sitt í húsinu ...
Donald Trump says a 'threat' led US to move bombers from RAF Fairford
📅 05.10.2026 👁️ 2
Donald Trump says a 'threat' led US to move bombers from RAF Fairford
The Pentagon confirmed on Sunday it had removed the B1 bombers from the base in England back to their home stations in America.
US 'watching closely' after plague researcher dies in Russia, Rubio says
📅 05.10.2026 👁️ 1
US 'watching closely' after plague researcher dies in Russia, Rubio says
The US says it is monitoring the case of a lab technician who died at a plague research centre in Siberia.
Hefur veitt stjórn VR óskorað umboð til að segja upp kjarasamningum
📅 05.10.2026 👁️ 2
Hefur veitt stjórn VR óskorað umboð til að segja upp kjarasamningum
Halla Gunnarsdóttir veitti stjórn VR í dag óskorað umboð til þess að segja upp kjarasamningum á fimmtudag. Hún segir boltann vera hjá Samtökum atvinnu...
Stjórn VR veitt óskorað umboð til að segja upp kjarasamningum
📅 05.10.2026 👁️ 1
Stjórn VR veitt óskorað umboð til að segja upp kjarasamningum
Trúnaðarráð VR hefur veitt stjórn VR óskorað umboð til þess að segja upp kjarasamningum á fimmtudag. Þetta segir Halla Gunnarsdóttir formaður VR, hún ...
Fengu heimild til þess að segja upp kjara­samningum - Vísir
📅 05.10.2026 👁️ 2
Fengu heimild til þess að segja upp kjara­samningum - Vísir
Jakob formaður Rafiðnaðarsambandsins segir að um öflugan fund hafi verið að ræða en alls sátu áttatíu manns fundinn. Fulltrúar stjórna innan félagsins...
Spain PM pins hopes on housing crisis to help win snap election
📅 05.10.2026 👁️ 2
Spain PM pins hopes on housing crisis to help win snap election
Calling of a snap election was not a knee-jerk reaction from Pedro Sánchez but a carefully thought-out manoeuvre, Guy Hedgecoe reports from Madrid.
Dísilverð hærra en það var fyrir verðlækkun um áramót
📅 05.10.2026 👁️ 2
Dísilverð hærra en það var fyrir verðlækkun um áramót
Ökumenn hafa eflaust flestir tekið eftir skörpum hækkunum á eldsneyti undanfarið. Bensínverð hefur hækkað um fjórðung frá því að skattalækkun stjórnva...
Löng bílalest og mikill viðbúnaður vegna heimsóknar Rubio
📅 05.10.2026 👁️ 3
Löng bílalest og mikill viðbúnaður vegna heimsóknar Rubio
Löng bílalest fylgdi Marco Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, frá Keflavíkurflugvelli inn í Reykjavík. Mikill viðbúnaður er vegna heimsóknar hans...
What prompted the US bombers to leave RAF Fairford?
📅 05.10.2026 👁️ 3
What prompted the US bombers to leave RAF Fairford?
The mass evacuation of American bombers from the UK points to concern in the Pentagon, our security correspondent writes.
Landssamband veiðifélaga hyggst kæra leyfisveitingu fyrir sjókvíaeldi í Seyðisfirði
📅 05.10.2026 👁️ 3
Landssamband veiðifélaga hyggst kæra leyfisveitingu fyrir sjókvíaeldi í Seyðisfirði
Landssamband veiðifélaga hyggst taka þátt í að kæra rekstrar- og starfsleyfi fyrir sjókvíaeldi í Seyðisfirði. Í yfirlýsingu Landssambandsins gagnrýnir...
Lögreglan í London hvetur námsmenn til að færa til göngu til stuðnings Palestínu sem fyrirhuguð er 7. október
📅 05.10.2026 👁️ 3
Lögreglan í London hvetur námsmenn til að færa til göngu til stuðnings Palestínu sem fyrirhuguð er 7. október
Lögreglan í London hvetur námsmenn til að færa til göngu til stuðnings Palestínu sem fyrirhuguð er 7. október Fréttin5. október 2026ErlentLeave a Comm...
Samtök atvinnulífsins vísa ásökunum um svik á bug
📅 05.10.2026 👁️ 3
Samtök atvinnulífsins vísa ásökunum um svik á bug
Samtök atvinnulífsins hafna öllum ásökunum um svik af hálfu þeirra, sem þau segja einstaka fulltrúa verkalýðshreyfingarinnar hafa talað um, að því er ...
Tvær flugvélar voru í hættu á að fljúga á þyrlu við Reykjavíkurflugvöll
📅 05.10.2026 👁️ 3
Tvær flugvélar voru í hættu á að fljúga á þyrlu við Reykjavíkurflugvöll
Tvær smærri flugvélar voru í hættu á að rekast á þyrlu yfir Fossvoginum með stuttu millibili síðdegis þann 2. ágúst 2024.Flugmenn þeirra höfðu ekki fe...
Öflugur jarð­skjálfti í Bárðar­bungu - Vísir
📅 05.10.2026 👁️ 3
Öflugur jarð­skjálfti í Bárðar­bungu - Vísir
Þetta segir í tilkynningu frá náttúruvárvakt Veðurstofunnar. Nokkrir eftirskjálftar hafi fylgt í kjölfarið en allir minni en tveir að stærð. Síðast va...
Dæmdur í tveggja mánaða fangelsi fyrir líkamsárás gegn barnsmóður
📅 05.10.2026 👁️ 3
Dæmdur í tveggja mánaða fangelsi fyrir líkamsárás gegn barnsmóður
Maður var dæmdur í tveggja mánaða fangelsi fyrir líkamsárás með því að hafa meðal annars slegið barnsmóður sína í andlitið, tekið hana kverkataki og s...
Meiri líkur en minni á að kjara­samningum verði sagt upp - Vísir
📅 05.10.2026 👁️ 3
Meiri líkur en minni á að kjara­samningum verði sagt upp - Vísir
„Akkúrat núna þá tel ég meiri líkur en minni á að við segjum upp kjarasamningum,“ sagði Halla Gunnarsdóttir, formaður VR, um kjarasamninga í Reykjavík...
Tímabundið drónabann vegna heimsóknar Marco Rubios
📅 05.10.2026 👁️ 3
Tímabundið drónabann vegna heimsóknar Marco Rubios
Tímabundið drónabann verður í miðborg Reykjavíkur í dag og á morgun vegna heimsóknar Marco Rubios, utanríkisráðherra Bandaríkjanna. Þetta kemur fram í...
Greindi frá sambandsslitum hennar og Elon Musk í dramatískri færslu - „Ég er í sárum“
📅 05.10.2026 👁️ 3
Greindi frá sambandsslitum hennar og Elon Musk í dramatískri færslu - „Ég er í sárum“
Ríkasti maður heims er einhleypur, eða það má ætla eftir að ein barnsmóðir hans, Shivon Zilis, upplýsti um sambandsslit þeirra á föstudaginn.„Það er e...
Marco Rubio kominn til landsins
📅 05.10.2026 👁️ 3
Marco Rubio kominn til landsins
Marco Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, er kominn til Íslands. Hann lenti á Keflavíkurflugvelli klukkan rétt fyrir klukkan sex. Í heimsókninni æ...
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir: Mannúðarmál að skýrum reglum sé framfylgt – lausung bitnar á þeim veikustu
📅 05.10.2026 👁️ 3
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir: Mannúðarmál að skýrum reglum sé framfylgt – lausung bitnar á þeim veikustu
Við erum að taka fast á málefnum varðandi innflytjendur og viljum að það sé sjáanlegt að hér ríki festa og að við höfum yfirlit og eftirlit með hlutun...
Athafnamaðurinn úrskurðaður í gæsluvarðhald
📅 05.10.2026 👁️ 3
Athafnamaðurinn úrskurðaður í gæsluvarðhald
Íslenskur athafnamaður á sextugsaldri sem var handtekinn í Leifsstöð í gærkvöldi, eftir komuna til landsins, hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald.Þ...
Sterkur skjálfti í Bárðarbungu
📅 05.10.2026 👁️ 3
Sterkur skjálfti í Bárðarbungu
Jarðskjálfti, 4,7 að stærð, varð í Bárðarbungu í Vatnajökli klukkan 17:28 í dag.Að sögn Steinunnar Helgadóttur, náttúruvársérfræðings hjá Veðurstofu Í...
Rubio lentur á Ís­landi - Vísir
📅 05.10.2026 👁️ 2
Rubio lentur á Ís­landi - Vísir
Hingað er ráðherrann kominn til að funda með Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur, utanríkisráðherra, og heldur hann síðan til Grikklands og Frakklands á mo...
Hafna á­sökunum um svik og benda á stjórn­völd - Vísir
📅 05.10.2026 👁️ 3
Hafna á­sökunum um svik og benda á stjórn­völd - Vísir
Í yfirlýsingu frá SA er vísað til umræðu síðustu daga þar sem einstakir fulltrúar verkalýðshreyfingarinnar hafi „talað um að launafólk hafi verið svik...
Ekkert lát á nemendamótmælum – Einn missti hönd í sprengingu
📅 05.10.2026 👁️ 3
Ekkert lát á nemendamótmælum – Einn missti hönd í sprengingu
Ekkert lát er á mótmælum framhaldsskólanema í Frakklandi sem hafa staðið síðan í síðustu viku. Um 500 skólum var lokað að fullu eða að hluta í dag í ö...
Athafnamaður úrskurðaður í gæsluvarðhald til 9. október
📅 05.10.2026 👁️ 3
Athafnamaður úrskurðaður í gæsluvarðhald til 9. október
Íslenskur athafnamaður sem var handtekinn í Leifsstöð við komuna frá Lissabon í gærkvöldi hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald til 9. október. Þett...
Prisoner took his own life after terror order had 'substantial impact' on mental state, inquest finds
📅 05.10.2026 👁️ 3
Prisoner took his own life after terror order had 'substantial impact' on mental state, inquest finds
Akhtar Uddin was jailed for breaching Terrorism Prevention and Investigation Measures in 2020.
King's funding for Andrew is not for legal action against police
📅 05.10.2026 👁️ 3
King's funding for Andrew is not for legal action against police
Andrew Mountbatten-Windsor is taking action over search warrants issued ahead of his arrest in February.
Portúgalsfarinn á bak við lás og slá - Vísir
📅 05.10.2026 👁️ 3
Portúgalsfarinn á bak við lás og slá - Vísir
Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglu. Hann hafi handtekinn í þágu rannsóknar málsins. Maðurinn var handtekinn þegar hann kom með flugi frá Port...
British Museum boss 'sorry' for Bayeux Tapestry visitor issues
📅 05.10.2026 👁️ 3
British Museum boss 'sorry' for Bayeux Tapestry visitor issues
Changes to how visitors see the Bayeux Tapestry exhibition were made after concerns over long queues and overcrowding.
Gigtarfélag Íslands fagnar 50 ára afmæli með tónleikum í Grafavogskirkju
📅 05.10.2026 👁️ 3
Gigtarfélag Íslands fagnar 50 ára afmæli með tónleikum í Grafavogskirkju
Gigtarfélag Íslands verður 50 ára föstudaginn 9. október. Af því tilefni verður efnt til afmælistónleika í Grafarvogskirkju laugardaginn 10. október k...
Réttarhöld framundan yfir ökumanni lyftarans í Lækjargötu – Ákærður fyrir manndráp af gáleysi
📅 05.10.2026 👁️ 3
Réttarhöld framundan yfir ökumanni lyftarans í Lækjargötu – Ákærður fyrir manndráp af gáleysi
Ökumaður skotbómulyftara sem olli banaslysi í Lækjargötu miðvikudaginn 13. september árið 2023 er ákærður fyrir manndráp af gáleysi og umferðarlagabro...
Úthúðar Bjarna Guðjóns eftir að samningi við Aþenu var sagt upp - „Virðist ekki hafa áhuga á að tala við fólk sem nær árangri“
📅 05.10.2026 👁️ 3
Úthúðar Bjarna Guðjóns eftir að samningi við Aþenu var sagt upp - „Virðist ekki hafa áhuga á að tala við fólk sem nær árangri“
Brynjar Karl Sigurðsson, þjálfari og einn af helstu forvígismönnum körfuboltafélagsins Aþenu í Efra-Breiðholti, vandar Bjarna Guðjónssyni borgarfulltr...
Thief threatens shop worker with knife in Lanzarote
📅 05.10.2026 👁️ 3
Thief threatens shop worker with knife in Lanzarote
The National Police are investigating a knife-point robbery at a clothes shop in Arrecife, after a man threatened a member of staff before escaping wi...
Ágreiningur um ágóða af álfasölu meðal deilumála SÁÁ
📅 05.10.2026 👁️ 3
Ágreiningur um ágóða af álfasölu meðal deilumála SÁÁ
Fyrrverandi forstjóra SÁÁ og framkvæmdastjórn greindi á um hvernig standa átti að ráðstöfun sjálfsaflafjár samtakanna, að sögn formanns SÁÁ.Mikill sty...
Samþykkja tillögu í tengslum við leigumál listafólks
📅 05.10.2026 👁️ 3
Samþykkja tillögu í tengslum við leigumál listafólks
Samþykkja tillögu í tengslum við leigumál listafólks Sprett­hóp­ur á að skila til­lög­um um hús­næði fyr­ir fyr­ir 15. nóv­em­ber næst­kom­andi. Ólík­...
Áhyggjuefni að meirihlutinn springi öðru sinni vegna gervigrasvallarins
📅 05.10.2026 👁️ 3
Áhyggjuefni að meirihlutinn springi öðru sinni vegna gervigrasvallarins
Sjálfstæðisflokkurinn í Suðurnesjabæ harmar að meirihlutasamstarfi við lista Samfylkingarinnar sé lokið og segir það áhyggjuefni að bæjarstjórn Suðurn...
Pentagon stops using Anthropic tools after blacklisting company, BBC told
📅 05.10.2026 👁️ 3
Pentagon stops using Anthropic tools after blacklisting company, BBC told
It labelled Anthropic a "supply chain risk" in February after the firm refused to remove safety guardrails from its tools.
Breski innanríkisráðherrann segir nær öllum konum sem reyna að komast yfir Ermarsund hafa verið nauðgað
📅 05.10.2026 👁️ 3
Breski innanríkisráðherrann segir nær öllum konum sem reyna að komast yfir Ermarsund hafa verið nauðgað
Shabana Mahmood, innanríkisráðherra Bretlands, segir nær öllum konum sem reyna að komast til landsins á smábátum frá norðurhluta Frakklands hafa verið...
Engum brögðum beitt í útgáfuhófi Bragðs - Vísir
📅 05.10.2026 👁️ 3
Engum brögðum beitt í útgáfuhófi Bragðs - Vísir
Útgáfugleðin var haldin sunnudaginn 27. september síðastliðinn og var ekki að undra að veitingarnar hafi verið hinar glæsilegustu en í veislunni mátti...