Sanna Magdalena Mörtudóttir, borgarfulltrúi Vinstrisins, segir það sérstakt að Ragnhildur Alda María Vilhjálmsdóttir, formaður velferðarráðs, hafi fengið „sjokk“ þegar hún sá að fyrri meirihluti í borginni hafi ekki verið búinn að fjármagna máltíðarþjónustu eldri borgara, Ragnhildur Alda hafi sjálf samþykkt tillöguna sem fulltrúi í velferðarráði. Ragnhildur Alda segir að það sé lágmark að fjármagn fylgi með skuldbindingum líkt og hafi verið gert í samningi um mötuneyti starfsfólks.
Sanna setur spurningamerki við „sjokk“ Ragnhildar Öldu: „Gerist ekki skýrara“