Ári eftir að kaffistofu Samhjálpar við Borgartún var lokað er rekstur hennar enn í óvissu og starfsfólki hefur verið sagt upp störfum. Samtökin náðu aldrei að opna á Grensásvegi eins og til stóð vegna mótmæla íbúa og samanlagt tap þeirra af málinu nemur um 70 milljónum króna.
Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir framkvæmdastjóri Samhjálpar segir Reykjavíkurborg og borgarstjóra, Hildi Björnsdóttur, hafa unnið hörðum höndum að því að finna nýtt húsnæði. Það hafi þó ekki enn borið neinn árangur.
„Við erum í rauninni bara enn með húsnæðismálin í uppnámi.“
Kaffistofan er í dag tímabundið til húsa í Hátúni 2 í Hvítasunnukirkjunni Fíladelfíu. Guðrún segir fjölbreyttan hóp sækja kaffistofuna, fólkið eigi það þó flest allt sameiginlegt að vera félagslega einangrað og kaffistofan sé einn af þeim fáu stöðum sem fólkið hafi kost á að sækja.
„Kaffistofan bjargaði mjög, mjög mörgum“
Ólafur Sveinsson kvikmyndagerðarmaður, sem gerði heimildamyndina Hlemm árið 2002, ætlar nú að gera heimildamynd um starfsemi Samhjálpar. Á þeim tíma sem hann vann að gerð kvikmyndarinnar Hlemm hafi hann séð hvað kaffistofan skipti miklu máli fyrir þá sem nýttu sér þjónustu þeirra.
„Samhjálp bjargaði mjög, mjög mörgum og kaffistofan var upphafið að því að menn fóru í meðferð og á áfangaheimili og svoleiðis.“
Birgir Rúnar Benediktsson, starfsmaður áfangaheimila Samhjálpar, segir mikilvægi kaffistofunnar gríðarlegt, sjálfur þurfti hann um tíma að leita á kaffistofuna.
„Yfir vetrarmánuðina var kaffistofan mjög mikill griðastaður og ég tel það mikla ástæðu fyrir því að ég er á lífi í dag að ég gat leitað þangað. Ég gat leitað skjóls og borðað en ég gat líka fengið þennan náungakærleik frá þeim sem unnu þar.“
Hægt er að horfa á innslag um Kaffistofuna í Kastljósi í heild sinni í spilaranum hér að neðan.