Yfirvöld í Nígeríu hafa staðfest fyrsta tilfelli ebólu í landinu. Þetta er fyrsta tilfelli ebólu í Nígeríu síðan 2014. Kona sem hafði ferðast frá Úganda til Abuja, höfuðborgar Nígeríu, var lögð inn á spítala vegna veikinda en var síðan greind með ebólu.
Konan er í einangrun og nýtur enn aðhlynningar vegna smitsins. Smitrakning er hafin og fylgst er náið með á fimmta tug einstaklinga sem hún var í samskiptum við sem gætu verið útsettir fyrir smiti.
Útbreiddasti ebólufaraldur sögunnar
Mannskæður ebólufaraldur kom fyrst upp í Lýðstjórnarlýðveldinu Kongó í maí. Þar hafa komið upp 9.400 tilfelli og skráð dauðsföll eru orðin 4.500. Þetta er 17. og langskæðasti ebólufaraldurinn sem gengið hefur yfir Kongó.
Bundibugyo-afbrigði veirunnar er sjaldgæft og ekkert viðurkennt bóluefni eða lyf eru til. Unnið er að þróun lyfja og bóluefnis og tilraunabólusetning heilbrigðisstarfsfólks er hafin.
Jean Kaseya, framkvæmdastjóri Sóttvarnarstofnunar Afríkusambandsins (Africa CDC), segir að ebólufaraldurinn nú sé sá útbreiddasti í sögunni og hafi borist til þriggja landa.
Flest tilfelli hafa verið greind í Kongó, en ebóla hefur einnig greinst í Úganda og nýverið í Kenía þar sem níu tilfelli hafa verið greind. Yfirvöld í Úganda segja þó að það séu engin virk ebólusmit í landinu og ekki sé víst að einstaklingur sem ferðist um Úganda hafi smitast þar.