Margir hafa sett sér það markmið að ganga að minnsta kosti 10.000 skref á dag í þeirri trú að það sé lykillinn að góðri heilsu. En hvaðan kemur þessi tala og er virkilega nauðsynlegt að ganga svona mikið til að njóta heilsufarslegs ávinnings?Svarið gæti komið mörgum á óvart.Jack McNamara, dósent í lífeðlisfræði við University of East London, segir í samtali við The Guardian að viðmiðið um 10.000 skref eigi sér ekki rætur í vísindarannsóknum. Það hafi í raun orðið til í markaðsherferð fyrir skrefamæli á sjöunda áratug síðustu aldar.
Hefurðu verið að eltast við 10.000 skref á dag? Þá ættirðu að lesa þetta