Sandra Sigurðardóttir, þingmaður Viðreisnar í Suðurkjördæmi, hefur tekið sæti Ingvars Þóroddssonar, oddvita flokksins í Norðausturkjördæmi, í fjárlaganefnd. Ingvar tekur sæti Söndru í velferðarnefnd í staðinn.
Þetta var tilkynnt í þinginu í gær.
„Það eru hrókeringar hjá okkur eins og eðlilegt er í upphafi þings,“ segir Sandra Sigurðardóttir í samtali við fréttastofu. Hún segir breytinguna hluta af fléttu breytinga innan flokksins.
„Ingvar er í mörgum stórum nefndum þannig að það var ákveðið að byrja á þessum breytingum núna.“
Ingvar var kjörinn á Alþingi 2024 og hafði setið í fjárlaganefnd síðan 2025. Sandra tók sæti á Alþingi í ársbyrjun eftir að Guðbrandur Einarsson sagði af sér þingmennsku.
Sandra tekur einnig sæti sem varamaður í utanríkismálanefnd og í Íslandsdeild þingmannaráðstefnunnar um norðurskautið í stað Jóns Gnarr.