Íslenskur íbúi í Drammen í Noregi segir samfélagið í sárum vegna elds sen kostaði hundruð manna heimili sín og logar í skóginum við bæinn. Hann vonar að það takist að slökkva eldinn í kvöld eða nótt þegar fer að rigna.
Eldur kviknaði í íbúðarhúsi í Krokstadelva í Drammen síðdegis í gær og breiddist hratt út. Baldur Sigurðsson segir að kjöraðstæður hafi verið fyrir útbreiðsluna.
„Hús í Noregi eru flest öll búin til úr timbri. Þetta hverfi er fyrst byggt 1970 og fram yfir 80 og húsin eru ansi þétt þarna í hlíðinni, og eins og vindáttin var í gær þá var hún ekki hagstæð með það að gera að þetta blés bara beint inn í hlíðina,“ segir Baldur.
Enn logar eldur í skóginum ofan við bæinn en slökkviliði hefur að mestu tekist að hefta útbreiðslu hans. Baldur segist hafa óttast hið versta.
„Sem betur fer fór það ekki þannig, það voru um sex þyrlur hérna í gær sem voru bara í færibandsvinnu við að hella vatni á þetta og þeir eru þrír í dag að slökkva það sem eftir er.“
Mikil uppbygging eftir en margir fari aldrei aftur heim
Baldur segir eldinn setja mikinn svip á samfélagið. Samheldnin sé mikil og fólk og félagasamtök reyni að hjálpa þeim sem hafi misst allt í eldinum.
„Það er búið að setja í gang hellings hjálparvinnu við að aðstoða fólk sem hefur misst hús og allt sitt. Þannig að það er mikið að gerast og það er mikil depurð í samfélaginu hérna núna. Maður finnur það hérna þegar maður er að labba um að fólk er sjokkerað yfir þessu,“ segir Baldur.
Hann segir að þegar það takist loks að slökkva eldinn taki umfangsmikil uppbyggingarvinna við.
„Öll vinna eftir þetta á eftir að vera gríðarleg við að byggja upp hverfið aftur. Ég býst líka við að það verði sumir sem að flytja ekki aftur heim til sín. Það merkist alveg á þjóðfélaginu núna að þetta er mikið tjón þannig að maður vonar það besta fyrir fólk.“