Forsætisráðherra Líbanon sakar ísraelsk stjórnvöld um stríðsglæpi vegna loftárásar Ísraelshers í suðurhluta Líbanon þar sem einn blaðamaður lést og annar særðist. Líbönsk stjórnvöld segja blaðamennina hafa verið skotmörk og að herinn hafi hindrað björgunarsveitir í að komast til þeirra.
Hindruðu för sjúkraflutningamanna
Amal Khalil, blaðamaður hjá dagblaðinu Al-Akhbar, og Zeinab Faraj, sjálfstætt starfandi blaðaljósmyndari, voru að ferðast saman nærri borginni Týros í suðurhluta Líbanon. Bíllinn fyrir framan þær varð fyrir loftárás Ísraelshers og tveir létust.
Kahlil og Faraj flúðu inn í byggingu í nágrenninu sem var svo sprengd í kjölfarið, samkvæmt heilbrigðisráðuneyti Líbanons. Sjúkraflutningamenn á vegum Rauða krossins í Líbanon náðu að bjarga Faraj úr rústunum en þegar þeir ætluðu að bjarga Khalil sprakk hljóðsprengja sem lokaði fyrir inngang byggingarinnar.
Heilbrigðisráðuneyti Líbanon sakar Ísraelsher um að hafa komið í veg fyrir að hægt væri að ljúka björgunaraðgerðum með því að skjóta hljóðsprengju og byssukúlum á sjúkrabílinn.
Almannavarnir fengu að fara inn í bygginguna fjórum klukkustundum eftir árásina og fundu Khalil látna.
Ódæði og brot á alþjóðalögum
Nawaf Salam, forsætisráðherra Líbanons, sagði á samfélagsmiðlum að árásir á blaðamenn og hindrun hjálparstarfs væru stríðsglæpir. Stjórnvöld myndu gera allt í sínu valdi til að höfða mál fyrir viðeigandi alþjóðastofnunum.
Ísraelsher sagðist hafa borið kennsl á tvö ökutæki sem voru á leið frá byggingu sem Hezbollah-samtökin nota og að þau hafi farið yfir varnarlínuna inn á svæði sem Ísrael hefur hernumið.
Bílarnir hafi nálgast hermenn á ógnandi hátt og þeir hafi óttast um öryggi sitt. Því hafi þeir ráðist á annan bílinn og síðan bygginguna. Herinn sagðist ekki beina árásum sínum gegn blaðamönnum.
Heilbrigðisráðuneytið sagði Ísraelsher hafa elt Khalil og Faraj. „Þetta er tvíþætt brot, að hindra björgunaraðgerðir almenns borgara sem er þekktur fyrir fjölmiðlaumfjöllun sína, og að beina árásum gegn sjúkrabíl sem er greinilega merktur með merki Rauða krossins.“
Sara Qudah, svæðisstjóri Nefndar um vernd blaðamanna, CPJ, sagði árásina ódæði og brot á alþjóðalögum. „Endurteknar árásir á sama stað, að beina árásum á svæði þar sem blaðamenn höfðu leitað skjóls og hindrun á læknisþjónustu og mannúðaraðstoð eru alvarleg brot á alþjóðlegum mannúðarlögum.“
„Vísvitandi og markvisst morð á blaðamanni“
Clayton Weimer, framkvæmdastjóri Blaðamanna án landamæra, sagði samtökin hafa sent Ísraelsher skilaboð um að leyfa sjúkrabílum að komast að Khalil. „Rauði krossinn gaf til kynna að sjúkrabílar kæmust ekki á vettvang vegna áframhaldandi árása Ísraelshers. Þetta er því kærulaus vanvirðing, auk þess virðist þetta vera vísvitandi og markvisst morð á blaðamanni.“
Tveir blaðamenn voru drepnir í tveimur loftárásum Ísraelshers fyrr í mánuðinum og þrír voru drepnir í mars. Samkvæmt stjórnvöldum í Líbanon hafa yfir 2400 hundruð manns verið drepin í loftárásum Ísraela síðan stríð braust út milli Hezbollah og Ísraels í byrjun mars. Samtökin hófu að gera árásir yfir landamærin á Ísrael eftir að Ísrael og Bandaríkin hófu loftárásir á Íran í lok febrúar.