Rúmensk orrustuþota af gerðinni F-16 grandaði sjávardróna nærri gasvinnslu undan ströndum landsins í dag. Radu Miruta, varnarmálaráðherra Rúmeníu, segir drónann hafa verið hlaðinn sprengiefnum og að hann hafi ekki komið frá Úkraínu.
„Ég fordæmi harðlega fjölgunina á þessum óábyrgu atvikum Rússa,“ skrifaði Nicusor Dan, forseti Rúmeníu, í færslu á samfélagsmiðlinum X.
Atvikum þar sem drónum er grandað í nágrannaríkjum Úkraínu hefur fjölgað talsvert upp á síðkastið. Bæði Rússland og Úkraína hafa stólað í sívaxandi mæli á drónahernað í stríði sínu. Herþotur Rúmena og NATO-ríkjanna hafa skotið niður í það minnsta fjóra dróna í lofthelgi landsins í ár frá því í júlí, nú síðast um síðustu helgi.
Áhöfn kaupskips kom auga á sjávardrónann snemma í morgun. Hann var þá í nokkur hundruð metra fjarlægð frá gasvinnslunni Neptun Deep, um 80 sjómílum austur af hafnarborginni Constanta.
Tvær F-16 þotur voru sendar á loft til að bregðast við og önnur þeirra eyðilagði drónann. Samkvæmt rúmenskum stjórnvöldum voru nokkur hundruð manns að störfum við Neptun Deep. Þar á gasvinnsla að hefjast á næsta ári.