Starfsmenn og notendur endurhæfingarþjónustunnar á Kristnesi í Eyjafirði eru ósáttir við að starfsemin verði flutt til Akureyrar. Óvissa ríkir um framtíðarnýtingu á húsnæðinu á Kristnesi þar sem mikilla viðgerða er þörf á ónýtum húsakosti.
„Fyrst og fremst finnst mér bara galið að færa endurhæfinguna inn til Akureyrar. Þarna er heilunarmáttur umhverfisins gríðarlegur og búið að byggja sundlaug og allt til alls. Mér finnst alveg einbúið að gera við þetta hús og halda starfseminni áfram,“ segir María Pálsdóttir, ábyrgðarkona undirskriftalistans á Ísland.is.
Ríflega 2.200 einstaklingar hafa skrifað undir hjá Maríu. Markmiðið er að ná 5.000 undirskriftum til að ná eyrum stjórnvalda.
„Ég reyni kannski að safna liði. Nú er ég búinn að vera í sambandi við fyrrverandi endurhæfingarlækni þarna á Kristnesi og við ætlum bara að fara að blása í einhverja herlúðra. Við ætlum að safna liði og gera eitthvað. Það gengur ekkert að ég sé bara ein að pípa. Við þurfum að fá fleira fólk á bak við okkur og storma, fjölmenna með þennan undirskriftalista held ég.“
Heilbrigðisráðuneytið segist bíða eftir niðurstöðum
Þann 16. júní var ákveðið að flytja alla starfsemi frá Kristnesi inn til Akureyrar. Á vefnum Akureyri.net var greint frá því að heilbrigðisráðuneytið hefði sagt að verulegra úrbóta væri þörf á núverandi húsnæði. Engar framkvæmdir eru hafnar enda ekki ráðlagt að ráðast í slíkar framkvæmdir fyrr en niðurstöður liggja fyrir um framtíðarnýtingu húsnæðisins og starfseminnar.
„Við bara verðum að standa vörð um þetta og við verðum að sýna samtakamátt. Við getum ekki látið svona hluti gerast. Þetta er náttúrulega vanræksla á viðhaldi áratugum saman, þannig að skömmin er okkar, þú veist, þjóðarinnar og ríkisins að leyfa þessu að gerast,“ segir María Pálsdóttir.