Eyjagöng ehf. hafa gengið frá samningi við norska ráðgjafafyrirtækið Norconsult um að vinna heildstætt kostnaðar- og fýsileikamat á gerð neðansjávarganga milli lands og Vestmannaeyja.
„Verkefnið er mikilvægur áfangi í að kortleggja tæknilegar forsendur samgöngubótar sem getur tryggt heilsárs vegtengingu meginlandsins við Vestmannaeyjar,“ segir í tilkynningu frá Eyjagöngum.
Norconsult býr yfir víðtækri reynslu af hönnun og mati á flóknum neðansjávargöngum á alþjóðavísu, meðal annars í Noregi og Færeyjum. Fyrirtækið metur hversu raunhæft verkefnið er út frá jarðfræðigögnum sem Eyjagöng hafa aflað í sumar.
Rannsóknarborunum á Landeyjasandi lýkur í lok mánaðarins. Búið er að bora 225,5 metra af þeim 300 metrum sem fyrirhugaðir eru. Verkfræðistofurnar Efla og Völuberg hafa haft umsjón og eftirlit með borununum.
„Sérfræðingar þeirra vinna nú að samantekt á jarðfræðilegum forsendum og munu jafnframt skila ítarlegri kostnaðar- og fýsileikagreiningu á framkvæmd jarðganganna,“ segir í tilkynningu Eyjaganga. Þannig verða tvö óháð kostnaðarmöt fyrir verkefnið unnin á sama tíma.
Búist er við því að niðurstöður fýsileikamats og annarra greininga verði kynntar undir lok árs.