Paris Jackson ræddi föður sinn, Michael Jackson, í hlaðvarpinu „Trying not to die“ sem Jack Osbourne heldur úti og segir hún að hún hafi áður fundið fyrir pressu að deila minningum og tilfinningum um föður sinn opinberlega vegna frægðar fjölskyldunnar.
Nú hafi hún hins vegar lært að hún skuldi engum aðgang að einkalífi sínu. Paris segir að hún sé á fallegum stað í tengslum sínum við föður sinn og kjósi að halda þeim hluta lífs síns fyrir sig.
„Sambandið mitt við pabba er það fallegasta sem ég á,“ segir hún og bætir við að það sé frelsandi að þurfa ekki lengur að útskýra eða sýna allt fyrir almenningi.
Paris neitaði að taka þátt í heimildamyndinni sem var gerð um Michael og hét einfaldlega Michael. Myndin sló öll áhorfsmet en bræður hennar Prince og Bigi tóku báðir þátt. Paris vildi hins vegar halda sér frá öllu tengdu myndinni.
Michael Jackson lést árið 2009 þegar Paris var aðeins 11 ára gömul, en hún hefur í gegnum árin reglulega minnst hans opinberlega.
Stjörnufréttir Evu Ruzu eru í samvinnu við Extra og Sjónvarp Símans!