Ökumaður var handtekinn grunaður um akstur undir áhrifum fíkniefna og einn var fluttur á slysadeild með minni háttar meiðsli eftir umferðarslys í Reykjavík í gærkvöld eða í nótt.
Þetta er meðal þess sem fram kemur í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu vegna verkefna frá klukkan 17 í gær til 5 í morgun. Alls gista átta í fangageymslum nú í morgunsárið.
Ökumaður bifhjóls var sektaður fyrir að aka bifhjólinu án þess að hafa það rétt skráð, aka því án gildra ökuréttinda og að vera ekki með viðeigandi öryggisbúnað.
Tilkynnt var um innbrot í Kópavogi. Á öryggismyndavélum sáust fjórir menn brjóta sér leið inn en flýja þegar öryggiskerfi hússins fór í gang.