Lægð beinir til okkar sunnan- og suðvestanátt, víða með golu eða kalda og skúrum, en úrkomuminna verður á Austurlandi. Um helgina beinir hæð milli Íslands og Skotlands til okkar hlýrri suðvestlægri átt. Á Norður- og Austurlandi verður þurrt og bjart og hiti að 25 stigum, en svalara og súld eða rigning suðvestan- og vestantil, að því er segir í hugleiðingum veðurfræðings á Veðurstofu Íslands:
Dálítil lægð skammt vestur af landinu stjórnar veðrinu hjá okkur í dag. Hún beinir til okkar sunnan- og suðvestanátt, víða gola eða kaldi og skúrir, en lengst af úrkomulítið á Austurlandi. Hiti 9 til 18 stig, hlýjast um landið norðaustanvert.
Vestan- og suðvestanátt á morgun, víða 5-13 m/s og dregur úr vætu. Hiti 8 til 17 stig, mildast á Suðaustur- og Austurlandi.
Um helgina er síðan útlit fyrir að öflug hæð á milli Íslands og Skotlands beini til okkar
hlýrri suðvestlægri átt. Á Norðaustur- og Austurlandi gera spár ráð fyrir þurru og nokkuð björtu veðri með hita á bilinu 18 til 25 stig, en suðvestan- og vestantil á landinu verður svalara í súld eða rigningu.