Mette Frederiksen veldur þeim fréttamönnum sem hafa beðið við höfnina í Odense nokkrum vonbrigðum þegar hún tilkynnir þeim að hún ætli lítið að ræða pólitíkina í dag. Það verði að bíða til morguns.
En hún lætur þann mola fylgja að það muni sennilega koma fólki á óvart hversu tilbúnir flokkarnir séu í þetta. „Þetta er gott bæði fyrir fólk sem býr í Danmörku, komandi kynslóðir og fyrir dýrin.“
Dýravelferð, einkum velferð svína, var nokkuð til umræðu í kosningabaráttunni – svo mikið að sumir vildu kalla kosningarnar svínakosningar.
Fundinum með konungi er lokið.
Mette Frederiksen ræðir nú við blaðamenn fyrir framan konungsskipið. Ný ríkisstjórn mun samanstanda af Sósíaldemókrötum, Sósíalíska þjóðarflokknum, Moderaterna (flokki Lars Løkke Rasmussen) og miðjuflokknum Radikale.
Gott kvöld,
Náðst hefur samkomulag um myndun nýrrar ríkisstjórnar í Danmörku.
Danska ríkisútvarpið greinir frá því að Mette Frederiksen sé komin um borð í skip konungs sem liggur við höfnina í Odense. Þar ætlar hún að greina honum frá nýju ríkisstjórninni.