Helga Þórisdóttir forstjóri Persónuverndar segir erindin hafa borist bæði fyrir og eftir þjóðaratkvæðagreiðsluna um liðna helgi. Tveimur dögum fyrir atkvæðagreiðsluna hafi til að mynda komið fram í frétt á vef stofnunarinnar að með notkun persónuupplýsinga í markaðssetningu, þar á meðal á samfélagsmiðlum, þyrftu hagsmunaaðilar að tryggja að vinnslan samrýmdist persónuverndarlögum.
„Þau snúa mestmegnis að því að fólk hafi verið að fá óumbeðnar símhringingar, SMS og tölvupósta. En síðan er fólk einnig að velta fyrir sér hugsanlegri miðlun á símanúmerum, þ.e. hvaðan úthringiaðilinn hafi fengið símanúmer sem er notað,“ segir Helga.
Aðspurð hvernig slíkt geti verið brot á persónuverndarlögum svarar Helga:
„Það má ekki nota persónuupplýsingar nema að hafa heimild til þess. Ef hringt hefur verið út samkvæmt úthringilistum þurfum við mögulega að skoða hvaðan listarnir eru komnir.“
Erindum fjölgað
Helga segir erindunum hafa fjölgað undanfarna daga. Alls hafi Persónuvernd nú borist nítján erindi vegna málsins.
„Það að við séum búin að fá nú þegar fimm kvartanir og í rauninni fjórtán ábendingar í það heila, ég myndi segja að það væri nokkuð mikið. Það að setja sig í stellingar og senda póst á eftirlitsaðila er náttúrulega eitthvað sem fólk gerir ekki á hverjum degi, “ segir Helga.
Allar nema ein vegna Áfram Ísland
Helga segir átján af nítján erindum sem Persónuvernd hefur fengið snúa að Áfram Íslandi, sem barðist fyrir því að kjósendur segðu nei í þjóðaratkvæðagreiðslunni. Eitt erindi snýr að Já til að sjá.
„Þær eru þannig að átján ábendingarnar af þessum nítján sem við höfum fengið snúast að nei-hliðinni,“ segir Helga.
Ákvörðun um næstu skref í málinu verði tekin fljótlega.
„Persónuvernd mun nú leggja mat á erindin og ákveða hvort tilefni sé til að hefja rannsókn. Ákvörðunin um framhaldið verður væntanlega tekin í upphafi næstu viku,“ segir Helga.
Aðspurð hvaða viðurlög geti komið til greina verði niðurstaðan sú að brotið hafi verið gegn persónuverndarlöggjöfinni segir Helga þau geta verið af ýmsum toga.
„Viðurlög samkvæmt persónuverndarlöggjöfinni geta verið margvísleg.“