Umboðsmaður Alþingis hefur lokið athugun sinni á hvort fyrir hafi legið vottorð um öryggisúttekt vegna viðbyggingar við húsnæði sem hýsir neyðarvistun Stuðla, þegar starfsemi þar hófst að nýju í kjölfar bruna árið 2024. Ljóst er að svo var ekki og í raun var húsnæðið án öryggisúttektar eftir endurbætur sem gerðar voru árið 2021 og þar með án leyfis til notkunar þess allt fram í maí á þessu ári.
Minnir á hver ber ábyrgðina á Stuðlum - Húsnæðið leyfislaust í nærri fimm ár