Úr varð að Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Framsókn mynduðu meirihluta og verður Hildur Björnsdóttir oddviti Sjálfstæðisflokksins næsti borgarstjóri Reykvíkinga.
Þá segjum við frá lokasprettinum sem framundan er á Alþingi í dag þegar rætt verður um væntanlega þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald viðræðna við ESB.
Að auki tökum við stöðuna á kjaradeilum Icelandair við flugmenn sína og flugvirkja en ríkissáttasemjari setti deiluaðila í fjölmiðlabann í gærkvöldi.
Í íþróttunum förum við svo yfir sigur KR á Val frá því í gær en þetta er í þriðja sinn sem liðið vinnu Valsmenn.