Meintur eltihrellir vill loka réttarhöldunum
Íris Helga Jónatansdóttir vill að réttarhöldum yfir henni verði lokað fyrir almenning. Saksóknari og réttargæslumenn mótmæltu þeirri kröfu skýlaust og verður réttað sérstaklega um þann anga málsins.
Lögmaður Írisar Helgu Jónatansdóttur fór fram á að réttarhöld yfir henni væru lokuð almenningi. Bæði saksóknari og réttargæslumenn neituðu að fallast á það og því fer fram þinghald næstkomandi mánudag þar sem réttað verður sérstaklega um þennan hluta málsins.
Íris Helga hefur verið ákærð fyrir umsáturseinelti, brot á barnaverndarlögum, rangar sakargiftir, skjalafals, hótanir og ærumeiðandi aðdróttanir. Ákæran er óvenjumikil að umfangi en listað er upp hátt í 70 atvik sem hún er ákærð fyrir og ná þau afbrot yfir árabilin 2022 til 2025.
Ekki er ákært fyrir birtingu á dánarfregn í Morgunblaðinu þar sem einn þolandi hennar sagði opinberlega að han teldi það hluta af umsáturseineltinu sem hann hafði mátt þola af hennar hálfu. Það átti sér stað nú í apríl síðastliðnum. Var Íris þá handtekin af lögreglu og farið fram á gæsluvarðhald, en ekki fallist á það.
