Matvælastofnun lítur á innbrot í svínabú Stjörnugríss á Kjalarnesi alvarlegum augum, segir Hrönn Ólína Jörundsdóttir forstjóri MAST. Tíu grísir drápust, fleiri dýr meiddust og skemmdir voru unnar á skrifstofu og svínahúsi.
„Við náttúrulega lítum þetta mjög alvarlegum augum, að þarna skyldi vera brotist inn og dýr sett í hættu og hlotið skaða af. Þannig að þetta er að sjálfsögðu ekki gott mál,“ segir Hrönn.
Brotist var inn aðfaranótt mánudags, innréttingar voru rifnar upp, stíur opnaðar og dyr skildar eftir opnar með þeim afleiðingum að dýr gengu laus um húsin. Sum þeirra gengu út á tún í slagviðri og myrkri.
Meta næstu skref að lögreglurannsókn lokinni
Rannsókn lögreglu miðar ágætlega. Ekki er talið að neinu hafi verið stolið en lögregla telur að innbrotið hafi verið skemmdarverk. Að öðru leyti fást ekki upplýsingar um rannsókn né hvort einhver liggi undir grun.
„Við leyfum lögreglu að klára sína rannsókn. Við höfum verið í samskiptum við lögreglu og fáum upplýsingar þegar rannsókninni er lokið,“ segir Hrönn. „Þegar lögregla hefur lokið sinni rannsókn þá rýnum við málið og skoðum hvort við þurfum sömuleiðis að bregðast við.“
Forstjóri Stjörnugríss segir að bréf sem skilið var eftir bendi til þess að dýraverndarsinnar hafi verið að verki. Hrönn segir velferð svína hafa stóraukist á undanförnum árum. Stjórnvöld hafi hert reglur og breytt reglugerðum þannig að velferð sé betur tryggð en áður.
Aukin harka í samfélaginu
MAST hefur lýst ofbeldi og hótunum í garð starfsmanna og Hrönn segist merkja aukna hörku í samfélaginu.
„Við erum að upplifa að það er meiri harka í samfélaginu gagnvart okkar starfsfólki, og væntanlega á þessum vettvangi sömuleiðis. Heimurinn er að breytast, ég held að það sé alveg deginum ljósara.“