Sema Erla segir frá þessu í færslu á Facebook í gærkvöldi.
Þar rifjar hún jafnframt upp að Einar S. Hálfdánarson, hæstaréttarlögmaður, hafi kært hana, Maríu Lilju Þrastardóttur og Solaris samtökin sama ár og söfnunin fór fram og á tveimur og hálfu ári hafi lögreglan fellt niður málið tvisvar, hann kært niðurstöðuna og ríkislögreglustjóri síðan gert lögreglunni að rannsaka málið á nýjan leik.
Allan þann tíma hafi Sema Erla verið með réttarstöðu sakbornings.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu gaf síðan fyrir skömmu ákæru út á hendur henni, eftir því sem fram kemur í færslunni, og hafi hún mætt fyrir dóm í gær og neitað sök.
Aðalmeðferð í málinu fer fram í lok október.