Kröfum söngkonunnar Bríetar Ísis Elfar gegn Pálma Ragnari Ásgeirssyni, lagahöfundi og þrotabúi Líms og varahluta ehf. um rúmar sjö milljónir hefur verið vísað frá í Héraðsdómi Reykjavíkur. Félagið var í eigu Pálma og hét áður Rok records.
Bríeti er gert að greiða Pálma 700 þúsund krónur í málskostnað og þrotabúi Líms og varahluta ehf. 200 þúsund krónur.
Bríet og Pálmi störfuðu saman um árabil við tónlistargerð og sömdu fjölmörg lög saman yfir fjögurra ára samstarf. Þar á meðal eru vinsælustu lög Bríetar Esjan og Rólegur kúreki.
Málið laut að höfundarréttar-, útgáfuréttar- og rétthafagreiðslum sem Bríet taldi félagið hafa haft af sér. Lögmaður Pálma krafðist þess að málinu yrði vísað frá dómi vegna verulegra ágalla á framsetningu.
Var ekki heimilt að breyta kröfugerð
Þá var einnig tekist á um hvort Bríeti hefði verið heimilt að lagfæra kröfugerð með framlagningu nýrra kröfugerða undir rekstri málsins og við munnlegan flutning málsins í því skyni að bregðast við frávísunarkröfum Pálma.
Dómstóllinn féllst á það og sagði kröfugerð Bríetar hvorki fullnægja kröfum sem gerðar eru um meðferð einkamála né um gjaldþrotaskipti. Málatilbúnaður Bríetar og skortur á gögnum hafi verið með slíkum hætti að það kynni að varða frávísun málsins af sjálfsdáðum.
Bríet hafi breytt kröfum sínum umfram það sem heimilt væri. Upphaflega hefði hún gert fjárkröfu um 7,1 milljón en síðar krafist viðurkenningar á ótilgreindum rétti til helmings tekna, þar á meðal framtíðartekna, og jafnframt reynt að leggja fram nýjar og breyttar kröfur seint í málsmeðferðinni.
Dómurinn leggur áherslu á að kröfur í gjaldþrotamálum þurfi að vera skýrar, sundurliðaðar og samræmast þeirri kröfu sem upphaflega var lýst til búsins.