Maður á gjörgæslu eftir að ryksuguvélmenni sprakk

Hinn 25 ára Lachie Perrem berst við alvarleg brunasár á 75% líkamans eftir að ryksugavélmenni sprakk á heimili hans í Perth, Ástralíu, og olli gríðarlegu tjóni. Perrem hefur verið vakinn úr dái eftir umfangsmiklar skurðaðgerðir og er hafin löng endurhæfing, á meðan eldvarnaryfirvöld rannsaka tæknilega bilun í tækinu.
Eftir tveggja vikna baráttu á gjörgæsludeild og margs konar skurðaðgerðir hefur bati Perrem verið vonum framar. Unnusta hans, Bri Thompson, greindi frá því að hann væri nú vaknaður, með meðvitund og farinn að tjá sig við fjölskyldu sína og læknislið á nýjan leik. Þrátt fyrir að hafa ekki endurheimt röddina að fullu finnur hann aðrar leiðir til samskipta, auk þess sem hann náði þeim stóra áfanga á dögunum að geta eytt stuttri stund utandyra í garði sjúkrahússins. Hann þurfti að fara í stóra aðgerð þar sem dautt hold var fjarlægt og húðágræðsla framkvæmd á fingrum, vinstri olnboga og búk.
Sprengingin olli algjörri eyðileggingu á heimili parsins og stendur Thompson eftir heimilislaus. Myndskeið af vettvangi sýna að þrýstingurinn sprengdi upp gluggana og urðu veggir kolsvartir af reyk og eldi, allt frá eldhúsinu yfir í stofu. Húsgögn eyðilögðust með öllu og gólffjalir sviðnuðu.
Rannsóknaraðilar hjá slökkviliðinu telja víst að bilun í ryksuguvélmenninu hafi hrundið brunanum af stað og stendur rannsókn málsins enn yfir. Perrem á framundan mjög stranga og langa læknismeðferð ásamt endurhæfingu, en fjölskylda hans og samfélagið, sem hann hefur styrkt í gegnum fyrirtæki sitt með áherslu á geðheilbrigði karla, standa þétt við bakið á honum.