Madonna hefur heitið verðlaunum fyrir að fá til baka búninginn sem hún klæddist á tónlistarhátíðinni Coachella um liðna helgi, eftir að hluti af honum týndist á svæðinu.
„Þetta eru ekki bara föt, þau eru hluti af sögu minni,“ segir söngkonan í færslu á Instagram.
Meðal þeirra muna sem hurfu voru fjólublár jakki, lífsstykki (e. corset) og kjóll sem hún klæddist þegar hún kom óvænt fram sem gestur á tónleikum Sabrina Carpenter á Coachella.
„Ég vona og bið að einhver góðhjörtuð manneskja finni þessa hluti og hafi samband við teymið mitt,“ segir Madonna og lofar verðlaunum í staðinn.
Fatnaðurinn er söngkonunni sérstaklega mikilvægur þar sem að hún klæddist sömu stígvélum, lífsstykki og jakka þegar hún kom fram á Coachella fyrir 20 árum. Nokkrir aðrir hlutir úr persónulegu safni Madonnu frá sama tímabili hafa einnig horfið.
Í yfirlýsingu frá lögreglunni í Indio kemur fram að fötin hafi síðast sést í golfbíl á hátíðarsvæðinu. Engar vísbendingar benda til þess að þeim hafi verið stolið vísvitandi, heldur gætu þau hafa dottið af golfbílnum þegar flytja átti þau upp í rútu.